Sorglegt að líkami og haus spilaði ekki alveg saman

Þrír leikir eftir af tímabilinu og svo fara skórnir á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Már er fyrirliði ÍA, tók við því hlutverki fyrir síðasta tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd tekin árið 2010.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Mætti KR í Evrópueinvígi með Grasshoppers.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Bakfallsspyrna í leik með Tindastóli.

Mynd: skagafjordur.com/tindastoll

Aaron Palomares og Rúnar Már fagna marki með HK.

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Enni í enni við Steven Lennon og Gunnar Jarl reynir að grípa í inn í.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Fór frá Val til Sundsvall.

Mynd: Heimasíða GIF Sundsvall

Marki fagnað með Astana í Kasakstan.

Mynd: Astana

Kom í ÍA fyrir tímabilið 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði fyrsta landsliðsmarkið 2012 í fyrsta landsleiknum; gegn Andorra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppalinn stuðningsmaður Manchester United.

Mynd: Total Football

Seinna markið fyrir landsliðið kom í lokaleiknum, gegn Liechtenstein árið 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrír leikir eftir af tímabilinu og svo fara skórnir á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er miðjumaður en lék vel sem miðvörður á lokakafla síðasta tímabils þegar ÍA náði að bjarga sér á ótrúlegan hátt frá falli úr Bestu deildinni.
Hann ræddi í dag við Fótbolta.net um ákvörðunina.

Rúnar Már leggur skóna á hilluna eftir tímabilið (Staðfest)
„Ég sagði fyrir þetta tímabil að ef þetta tímabilið yrði eins og það varð svo; start-stopp og meiðsli, þá myndi ég líklegast hætta. Ég hef verið að hugsa þetta alvarlega síðustu vikur hvort það sé ekki kominn tími á þetta. Ef ég færi í annað ár, þjösnast eitthvað og það yrði svipað og þetta, þá yrði þetta ekki þess virði. Líkaminn er svolítið búinn að fá nóg, finn vel fyrir honum dagsdaglega í öllu sem maður gerir. Bara það að trekkja sig upp fyrir eina æfingu tekur mikinn tíma og tekur mikið á. Þetta er bara tímapunkturinn, líkaminn sagði stopp," segir Rúnar.
Erfitt að labba í burtu
Er pínu fúlt að höfuð og líkami eru ekki alveg í takti?
„Já, það er það. Hausinn er alveg skarpur og hann var alveg tilbúinn í að halda áfram. Þess vegna var þetta svolítil barátta síðustu vikur um hvor hefði betur. Maður áttar sig á því þegar maður er kominn á þann stað að taka ákvörðun - þetta er bara eitt líf og einn ferill - að maður hættir svo ekkert við að hætta. Allavega ekki ég. Það gerði ákvörðunina erfiðari. Það er erfitt að labba burt frá því sem maður hefur gert alla sína ævi. Það er svolítið sorglegt að líkami og haus spilaði ekki alveg saman."
Ætlar á skólabekk og framhaldið óráðið
Veistu hvað tekur við?
„Nei, ekki beint. Ég ætla að klára þetta tímabil eins vel og hægt er. Ég veit ekki hversu mikið ég mun vera með í lokaleikjunum. Ég hef rætt við ÍA um starf og við eigum eftir að ræða það ítarlegar næstu vikurnar fyrst ég tók þessa ákvörðun. Ég hef átt samtöl við aðra klúbba og átt samtöl við marga menn í fótboltaheiminum. Svo er bara að sjá hvað kemur upp."
„Mjög líklega starfa ég eitthvað innan fótboltans, hvort sem það sé þjálfun eða eitthvað inn á skrifstofu. Planið er að fara í nám á næsta ári og læra hjá UEFA um sports director starfið, yfirmann fótboltamála. Ég ætla byrja að læra inn á það og sé hvað gerist. Ég er opinn fyrir öllu, þjálfari, skrifstofustarf eða fara á sjóinn," segir Rúnar á léttu nótunum.
Hann er búinn að taka allar þjálfaragráðurnar sem hann hefur getað tekið án þess að vera þjálfari. „Ég kláraði það eftir að ég kom heim. Ef ég fer út í þjálfun, ef eitthvað býðst þar, þá mun ég halda áfram að mennta mig á því sviði."
Býst við því að búa áfram á Akranesi
Rúnar er opinn fyrir því að starfa annars staðar en á Akranesi en býst ekki við því að flytja þaðan.
„Ég er með þrjú börn í skóla og leikskóla. Ég held ég muni ekki flytja, en maður er ekki lengi að renna í bæinn. Allt þar og allt í kring kemur vel til greina. Flest störfin í fótboltanum eru hér á þessu svæði."
Svekktur með heimkomuna
Hvernig metur þú í heild sinni heimkomuna eftir atvinnumannaferilinn erlendis?
„Vonbrigði. Fyrsta árið kem ég meiddur, er þá nýbúinn í aðgerð í Finnlandi á nára. Nárinn fór bara í sundur alveg upp við beinið í klofinu. Svo kem ég aðeins inn, næ 9-10 leikjum en svo fer hinn nárinn í sundur. Það ár var þá farið gjörsamlega."
„Í fyrra missti ég held ég bara af einum leik vegna meiðsla. Persónulega var það fínt en við vorum eiginlega fallnir í fyrra. Það voru blendnar tilfinningar gagnvart því, en ég var heill allt sumarið og ekkert vesen. Það er synd að það hafi ekki náð að skila sér inn í ár, átti mjög fínt undirbúningstímabil hér, spilaði alla leiki og gekk vel, en svo meiðist ég rétt fyrir æfingaferð og það dregur dilk á eftir sér. Ég fer þrisvar sinnum of snemma af stað og þá dett ég aftur í meiðsli. Þetta tímabil í ár var sorglegt í alla staði hjá mér, náði aldrei að komast í neinn takt í sumar."
Mjög erfitt að segja nei við Val
Ákvörðunin að fara í ÍA, var hún einföld? Lá beinast við að fara í ÍA?
„Nei, það gerði það ekki. Að lokum var þetta á milli Vals og ÍA og það var mjög erfið ákvörðun. Ég var mjög lengi í Val áður en ég fór út og þekkti alla mjög vel þá. Ég var í miklu og góðu samtali við góðan vin minn Börk hjá Val. Það var mjög erfið ákvörðun að segja nei við Val. Ég var að flytja á Skagann og það var ýmislegt spennandi í gangi hér sem ég vildi taka þátt í. Ég sé ekkert eftir því, það var held ég rétt ákvörðun. Það er bara synd að maður gat ekki spilað meira á þessum þremur árum."
Það voru allir búnir að fella okkur
Verður þessi lokakafli í fyrra það sem þú munt horfa í jákvætt varðandi heimkomuna, velgengnin í þessari erfiðu stöðu sem liðið var komið í?
„Það voru allir búnir að fella okkur. Þetta var komið á allra, allra síðasta séns. Ég hafði einhvern veginn alltaf trú, sem var kannski barnalegt af mér, að við myndum snúa þessu við. Það þarf bara oft einn sprett einhvers staðar í mótinu þar sem nokkrir leikir vinnast og þá ertu kominn í þokkaleg mál. Það kom seint, en það kom. Við enduðum svo í 8. sæti, stukkum svolítið upp í lokin. Það var mjög gaman þrátt fyrir að tímabilið hafi verið mjög þungt og erfitt."
„Þó að ég náði ekki almennilegum takti 2024 þá gekk mjög vel hjá okkur á því tímabili og það var gaman að vera partur af því."
EM og leikurinn á Old Trafford
Rúnar er uppalinn í Tindastóli og lék svo með HK og Val áður en hann hélt út í atvinnumennsku. Þar spilaði hann með Sundsvall í Svíþjóð, bæði St. Gallen og Grasshoppers í Sviss, Astana í Kasakstan og svo bæði CFR Cluj og Voluntari í Rúmeníu áður en hann samdi við ÍA. Hver er hápunkturinn á ferlinum? Horfir þú til titlanna í Rúmeníu og Kasakstan?
„Það er erfitt að segja hvort maður horfi í leiki, titla eða einhver afrek. Það að fara á EM með landsliðinu er auðvitað stórt; móment sem maður mun aldrei gleyma. Þetta er samspil af mörgu, ferðalag sem ég fór í. Ég fór aðeins öðruvísi leið en margir hafa farið og sé alls ekki eftir því. Ótrúlegur tími og ótrúleg lönd sem ég fékk að búa í og kynnast fólkinu þar."
„Þegar ég horfi yfir þetta er enginn einn klár hápunktur. Ég hugsa samt oft um þegar við spiluðum á Old Trafford (með Astana í Evrópudeildinni árið 2019), en það er meira af því að öll fjölskyldan er United fólk og fékk að upplifa að fara á leik þar og sjá mig spila þar. Ég er mjög ánægður fyrir þeirra hönd að hafa upplifað það og hugsa oft með til hlýju þess."
Sviss mitt annað land
Hvar leið þér best erlendis?
„Þetta er svo ólíkt allt saman. Svíþjóð er svipað og Ísland nema aðeins stærra. Sviss finnst mér mitt annað heimili, ég var þar í þrjú ár í frábærum klúbbi (Grasshoppers) og eignaðist fyrsta barnið mitt þar. Ég fór svo til Kasakstan sem mér fannst geðveikt, en það er svona fyrir og eftir covid tími. Það var frábært að búa í Rúmeníu, elska Rúmeníu og þriðja barnið mitt fæddist þar. Þetta er mjög erfitt, en ég horfi alltaf á Sviss sem mitt annað land."
Allar ákvarðanir í lífinu miðuðust við landsliðið
32 landsleikir, tvö mörk. Seinna markið kom í lokaleiknum, hvernig horfir það við þér, hefðir þú viljað spila meira með landsliðinu?
„Það voru breytingar í gangi á þessum tíma þegar ég spila minn síðasta leik. Ég skora í síðasta leiknum (gegn Liechtenstein) og skora líka í fyrsta leiknum (gegn Andorra), það leið því svolítið langur tími á milli marka. Að hafa verið partur af þessu gullaldarliði og fá að upplifa þeta allt með þeim var geggjað."
„Auðvitað hefði maður eins og allir viljað spila miklu meira en við spiluðum mikið til á sama liðinu mikið til í sex ár. Ég var í besta sætinu oft að fylgjast með því, beint frá bekknum. Á einhverjum öðrum tíma hefðu landsleikirnir mögulega orðið miklu fleiri. Það var geggjað að vera partur af þessu, geggjað að hafa kynnst strákunum og öllum þjálfurunum og starfsteyminu í kringum landsliðið."
„Á sínum tíma lifði maður fyrir landsliðið, maður beið bara eftir því og allar ákvarðanir í lífinu, jafnvel þó að ég væri á bekknum, miðuðust að því að vera í landsliðinu. Það var eina markmiðið á sínum tíma og ég sé ekki eftir mínútu sem ég varði í landsliðið þó að ég hafi ekki verið að spila oft mikið."
Þarf aðeins skýrari stefnu
Þú sagðir áðan að það hefði ýmislegt spennandi verið í gangi hjá ÍA. Ertu hrifinn af þeim stað sem ÍA er á í dag?
„Síðustu 5-6 ár hefur ÍA vaxið gríðarlega mikið. Ég held að framtíðin sé mjög björt. Það þarf svolítið að passa sig líka, þú þarft að stækka á öllum sviðum ef þú ætlar að vera alvöru félag. ÍA ætlar að keppa við þau bestu og þá þarf að huga að ýmsu. Það er ekki hægt að spara á einum stað og eyða öllu á öðrum, það verður allt að spila saman til að geta keppt við þessi bestu lið."
„ÍA hefur tekið stór skref, það var mjög mikilvægt að falla ekki í fyrra, það var tekið skref fram á við. Það skal svo ekki vanmeta stöðugleika í þessari deild, það má ekki vera oft að miða of hátt og klikka svo."
„Það þarf aðeins skýrari stefnu finnst mér, hægt að halda betur um fullt af hlutum - þó að ansi margir hlutir séu vel gerðir. Batteríið er búið að stækka og þá þarf umhverfið og öll umgjörð að stækka. ÍA getur gert frábæra hluti á næstu árum ef rétt er haldið á spöðunum."
Gervigrasvöllur framtíðin fyrir ÍA
Þessu tengdu, það hefur verið rætt um gervigras á aðalvöllinn. Varðandi framþróunina, sérð þú það þannig að félagið þurfi gervigras á keppnisvöllinn?
„Ég er mikill gras maður og ég er mjög ánægður að ég sé að enda minn feril á grasi síðustu árin hérna heima. Ég skil alveg að þetta gengur ekkert til lengdar. Félagið áttar sig alveg á því að ef það ætlar að keppast um einhverja titla þá þarf að fara á gervigras. Það er bara staðreynd og það er næsta skref. Það er búið að vera vinna í því í mörg ár núna og mér sýnist það vera að takast. Ég myndi halda að það sé mjög líklegt að ÍA verði komið á gervigras næsta sumar," segir Rúnar að lokum.

Rúnar Már er fyrirliði ÍA, tók við því hlutverki fyrir síðasta tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd tekin árið 2010.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Mætti KR í Evrópueinvígi með Grasshoppers.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Bakfallsspyrna í leik með Tindastóli.

Mynd: skagafjordur.com/tindastoll

Aaron Palomares og Rúnar Már fagna marki með HK.

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Enni í enni við Steven Lennon og Gunnar Jarl reynir að grípa í inn í.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Fór frá Val til Sundsvall.

Mynd: Heimasíða GIF Sundsvall

Marki fagnað með Astana í Kasakstan.

Mynd: Astana

Kom í ÍA fyrir tímabilið 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði fyrsta landsliðsmarkið 2012 í fyrsta landsleiknum; gegn Andorra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppalinn stuðningsmaður Manchester United.

Mynd: Total Football

Seinna markið fyrir landsliðið kom í lokaleiknum, gegn Liechtenstein árið 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

