Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 02. janúar 2023 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alvarez beðinn um að hætta með kærustu sinni
Julian Alvarez.
Julian Alvarez.
Mynd: Getty Images
Undirskriftarsöfnun sem hvetur argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez til að hætta með kærustu sinni er komin með yfir 20 þúsund undirskriftir.

Alvarez sló í gegn á HM þar sem hann hjálpaði Argentínu að vinna mótið.

Hann nýtur núna mikilla vinsælda og er með marga harða aðdáendur, en það er ekki hægt að segja það sama um kærustu hans, Emilia Ferrero.

Ástæðan er myndband sem hefur verið í dreifingu síðustu daga. Þar sést aðdáendahópur biðja um áritun og myndir frá Alvarez, en kærasta hans bað fólkið um að drífa sig; bað hún það því um að taka hópmynd. Hefur hún verið gagnrýnd fyrir viðhorf sitt gagnvart aðdáendum leikmannsins.

Mikil reiði skapaðist yfir þessu og var ákveðið að stofna til undirskriftarsöfnunar þar sem Alvarez - sem er með viðurnefnið 'kóngulóin' - er beðinn um að hætta með Mary Jane. Er þar verið að vísa til bíómyndanna um Kóngulóarmanninn (e. Spiderman) en ástin í lífi hans er Mary Jane.

Alvarez mun þó ekki hlusta á þessa undirskriftarsöfnun. Hann birti mynd af sér með kærustu sinni á gamlárskvöld.



Athugasemdir
banner
banner