Jóhann Kristinn eftir sigurinn: Vona að þær verði eins og beljurnar á vorin

Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar var að vonum ánægður með sínar stelpur, sjálfboðaliða og stuðningsmenn Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar var að vonum ánægður með sínar stelpur, sjálfboðaliða og stuðningsmenn Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Tilfinningin er ógeðslega góð. Þetta er frábært og það er ekki hægt að lýsa því hvað þetta er mögnuð stund,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson eftir að Þróttur varð bikarmeistari í fyrsta sinn með 1-2 sigri gegn Grindavík/Njarðvík.
Þróttur sló Breiðablik, Víking og ÍBV úr leik áður en kom að úrslitaleiknum. Allir fjórir sigrar liðsins í keppninni unnust með eins marks mun.
„Mér finnst þetta allt erfiðir leikir í þessari bikarkeppni í ár og það gerir eiginlega bara sigurinn og þennan titil enn sætari, finnst mér. Það er bara frábært að koma á Laugardalsvöll og frábært að spila. Gott veður, fjöldi áhorfenda og góður stuðningur hérna.“
„Þróttarar voru algjörlega til fyrirmyndar og unnu hérna í stúkunni líka. Og svo bara karakterinn og viljinn í þessum stelpum sem ég er að þjálfa er náttúrulega bara gjörsamlega ólýsanlegur og samstaðan. Þær eiga þennan titil algjörlega skuldlaust og þvílíkt skilið.“
Grindavík/Njarðvík komst yfir í leiknum en Þróttur svaraði með tveimur mörkum. Jóhann kvaðst ekki hafa haft miklar áhyggjur undir lokin þegar andstæðingurinn reyndi að jafna.
„Þær ná að komast yfir í þessum leik og það bara örugglega verðskuldað. En mér fannst við svona kveikja á okkur og reka í síðasta gírinn þegar það gerist. Ég hafði ekkert rosalega miklar áhyggjur þarna í restina.“
Mollee Swift, markvörður Þróttar, var sárþjáð en kláraði leikinn.
„Stríðsmaðurinn okkar í markinu spilaði hér á einari, eins og við segjum fyrir norðan, og alveg að drepast. Þannig að hún varð að bjarga okkur og bara eins og varnarmennirnir, þær verja markið sitt alveg með kjafti og klóm. Ég gæti ekki verið ánægðari með þær.“
Jóhann vonast til þess að fyrsti bikarmeistaratitillinn verði stórt skref fyrir félagið.
„Að vinna titla, það gefur og það nærir og það kveikir líka ákveðnum þorsta sem er ekkert svo gott að slökkva. Þessi þorsti getur orðið til þess að þú færð ákveðna tegund af metnaði sem lyftir öllu upp á hærra plan.“
„Það er kannski það sem Þróttur bara pínu þurfti, bæði karla- og kvennamegin, að komast yfir þennan þröskuld að vera ekki búin að vinna þennan titil. Kannski erum við bara að hjálpa til hérna í flottri sögu Þróttar.“
Jóhann þakkaði þeim sem hafa lagt hönd á plóg hjá félaginu í gegnum tíðina.
„Fólkið hérna sem er búið að vera að vinna í stjórnum og sjálfboðaliðastörfin og leikmennirnir og þjálfararnir hérna og þjálfarinn á undan mér, þau eru búin að vera að varða þessa götu. Svo bara gerist þetta núna í dag og vonandi er þetta eitt af þessum stóru skrefum sem verður til þess að Þróttur verður eitt af stóru liðunum í kvennabolta.“
Nú tekur við fögnuður hjá nýkrýndum bikarmeisturum.
„Ég vona að þær sleppi bara fram af sér beislinu, blessaðar, og verði svona eins og beljurnar á vorin, eins og Völli vinur minn segir. Það verður bara eitthvað rosapartí. Ég veit það ekki. Ég verð orðinn syfjaður upp úr kvöldmat þannig að ég vona að þær geri eitthvað skemmtilegt og fólkið sem er búið að vinna með þeim.“
