banner
   mán 02. mars 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Hnefaleikamaður veitti Watford innblástur fyrir Liverpool leikinn
Mynd: Getty Images
Troy Deeney, fyrirliði Watford, segir að sigur hnefaleikamannsins Tyson Fury á Deontay Wilder um þar síðustu helgi hafi hjálpað liðinu fyrir 3-0 sigurinn á Liverpool um helgina.

Watford skellti Liverpool um helgina en Deeney segir að sigur Fury hafi veit leikmönnum innblástur.

„Við fengum innblástur frá Tyson Fury," sagði Deeney eftir leikinn um helgina.

„Við ákváðum að fara í þetta af fullum krafti og ráðst á þá. Við vorum góðir og þeir áttu ekki góðan dag."

„Við skulum ekki láta eins og þeir hafi ekki verið upp á sitt besta. Við nýttum færin okkar og ég veit ekki hvað ég get sagt meira. Ég vil ekki sýna þeim vanvirðingu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner