Spænska félagið Barcelona er reiðubúið að selja króatíska miðjumanninn Ivan Rakitic í sumar en spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í kvöld.
Þessi 32 ára miðjumaður spilaði með Basel, Schalke og Sevilla áður en hann gekk til liðs við Barcelona árið 2014.
Hann hefur unnið þrettán titla á þeim sex árum sem hann hefur varið hjá félaginu en hann verður samningslaus á næsta ári.
Barcelona ætlar að selja hann í sumar og hefur félagið sett 17,6 milljón evra verðmiða á hann.
Manchester United hefur haft augastað á Rakitic undanfarna mánuði en hann hefur einnig verið orðaður við stóru liðin á Ítalíu.
Athugasemdir