Fotbolti.net
26.09.26 - 10:17
Brynjar Ingi Erluson

Heimir og Írar frestuðu fréttamannafundinum - „Ég er enginn hálfviti“

Heimir Hallgrímsson er þjálfari írska landsliðsins

Heimir Hallgrímsson er þjálfari írska landsliðsins

Canon

Mynd: EPA

Heimir Hallgrímsson og leikmenn írska landsliðsins frestuðu fréttamannafundi sem átti að fara fram í morgun vegna komandi leiks gegn Ísrael í Þjóðadeildinni.
Heimir: Ekki snjallt að draga athyglina að mér
TENGT EFNI

Heimir: Ekki snjallt að draga athyglina að mér

Heimir og einn leikmaður írska landsliðsins áttu að mæta á fréttamannafund klukkan 08:15 að íslenskum tíma, en aðeins fimmtán mínútum fyrir fundinn var tilkynnt að þeir myndu þess í stað ræða við fjölmiðla eftir æfingu liðsins.

Fulltrúi á vegum UEFA var mættur á staðinn til að vera viðstaddur fundinn og sagði blaðamönnum að hann hefði sjálfur aðeins fengið fréttirnar skömmu áður. Írska fótboltasambandið gæti því átt von á sekt.

Samkvæmt heimildum The 42 ætluðu leikmenn að senda frá sér yfirlýsingu fyrir fundinn þar sem þeir myndu staðfesta að þeir hygðust spila leikinn.

Leikmannahópurinn kom saman og ræddi alla möguleika og ólíkar skoðanir innan hópsins. Mikil reiði er yfir því að hafa verið settir í þessa stöðu, en það kemur þó ekki til greina að hætta við þátttöku í leiknum.

„Mér finnst að þessi leikur ætti ekki að vera spilaður, en hann mun fara fram. Við munum eiga dýpri samtöl um þetta og hvaða þýðingu það hefur. Við ræðum þetta saman sem hópur og tökum síðan stöðuna.“

„Þetta er erfitt og stórt umræðuefni á Írlandi. Ég hef einbeitt mér að fótboltanum mínum á Englandi, en vissi að það styttist í þennan leik og hef því auðvitað haft tíma til að hugsa um þetta.“

„Við leikmenn höfum rætt þetta og þá sérstaklega þeir reynslumeiri, um hver næstu skref eigi að vera. Nú erum við hér og getum átt alvöru samtal um þýðingu leiksins og hvaða afleiðingar hann getur haft. Við gerum það á föstudag,“
sagði Jason Knight, leikmaður írska landsliðsins, á fimmtudag.

Óbragð er í munni fleiri leikmanna og Chiedozie Ogbene er einn þeirra sem hefur tjáð sig opinberlega um málið.

„Ég er kaþólskur og hef mínar siðferðisreglur. Ég er ekki hlynntur því sem er að gerast og finn til með almennum borgurum. Hugur minn og hjarta eru hjá fólkinu sem þetta hefur haft áhrif á.“

„Ég er enginn hálfviti og hef séð ýmis skilaboð. Stuðningsmenn hafa látið skoðanir sínar í ljós, en ég reyni að lesa sem minnst af því.“

„Ef leikurinn fer fram þýðir það ekki að við séum bestu vinir Ísraela. Það eru stjórnvöld í Ísrael sem taka þessar ákvarðanir og fulltrúar UEFA eru betur til þess fallnir að svara þessum spurningum en við. Það er einfaldlega sannleikurinn,“
sagði Ogbene.

Leikurinn gegn Ísrael fer fram í Ungverjalandi á morgun.
Jason Knight er einn þeirra sem hafa stigið fram og tjáð sig um leikinn gegn Ísrael

Jason Knight er einn þeirra sem hafa stigið fram og tjáð sig um leikinn gegn Ísrael

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.