Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 02. apríl 2020 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meunier góður með sig: Félög hafa ekki miklu að tapa
Thomas Meunier.
Thomas Meunier.
Mynd: Getty Images
Thomas Meunier, hægri bakvörður Paris Saint-Germain, tekur því rólega þegar kemur að sögum um möguleg félagaskipti.

Hinn 28 ára gamli Meunier rennur út á samningi hjá PSG í sumar. Hann er góður með sig, en tekur því rólega.

„Frír 28 ára gamall landsliðsmaður sem spilar í besta landsliði heims. Ég get ekki verið slæmur gaur að hafa í liði jafnvel þó að ég myndi skera annan fótinn af mér," sagði Meunier við RTBF.

„Félög hafa ekki miklu að tapa í þeirri fjárfestingu og ég held að þau viti það."

Meunier segist hafa séð mikið af sögusögnum um möguleg skipti hans til Inter eða Tottenham. Þá var hann orðaður við Manchester United í slúðurpakkanum í morgun. Hann segir sjálfur að markmið sitt sé að vera áfram í París þar sem hann hefur verið frá 2016.
Athugasemdir
banner
banner
banner