Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   sun 02. apríl 2023 10:20
Aksentije Milisic
Man City og Real vilja fá Gvardiol - Mount til Liverpool?
Powerade
Gvardiol.
Gvardiol.
Mynd: Getty Images
Man City og Liverpool vilja fá Mount.
Man City og Liverpool vilja fá Mount.
Mynd: Getty Images
Hvað verður um Felix?
Hvað verður um Felix?
Mynd: Getty Images

Gvardiol, Mount, Maguire, Messi, Felix, Raya, Laporte, Fati og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins á öðrum degi apríl mánaðar. BBC tók allt það helsta saman.
________________________


Manchester City og Real Madrid hafa gert hinn 21 árs Króata, Josko Gvardiol, að sínu aðalskotmarki í félagsskiptaglugganum í sumar. Gvardiol er leikmaður RB Leipzig. Félagið setur 75 milljóna punda verðmiða á leikmanninn. (90min)

Liverpool og Manchester City eru bæði að vinna í því að bjóða Mason Mount samning en Liverpool er talið líklegra liðið til að hreppa þennan 24 ára gamla leikmann frá Chelsea. (Football Insider)

Leicester City vill fá Harry Maguire aftur til liðsins á láni frá Manchester United. (Sun)

Daniel Levy hefur sagt við Mauricio Pochettino að hann vilji ekki að Argentínumaðurinn taki aftur við Tottenham Hotspur. (Star)

Lionel Messi mun ekki taka á sig launalækkun til að vera áfram hjá PSG. (Goal)

Ef Messi fer frá PSG þá eru tveir valmöguleikar fyrir hann. Að fara aftur heim til Barcelona eða til Sádi-Arabíu og ganga til liðs við Al-Hilal. (Mirror)

Chelsea gæti þurft að borga leikmönnum háar upphæðir til þess að yfirgefa félagið í sumar og minnka þannig launakostnað. (Sun)

Kim Min-jae (26), varnarmaður Napoli og Suður-Kóreu, hefur áhuga á að ganga til liðs við Liverpool. (Foot Mercato)

Manchester United fylgist með stöðu Joao Felix en þessi 23 ára gamli Portúgali er þessa stundina á lánssamningi hjá Chelsea. (Mundo Deportivo)

Man Utd hefur mikið álit á Diogo Costa (23), markverði Porto og David Raya (27), markverði Brentford en hvorugur vill ganga til liðs við Man Utd ef að David De Gea (32) skrifar undir nýjan samning. (Express)

Anthony Martial (27) er á meðal átta leikmanna sem Manchester United ætlar að selja í sumar. (Football Insider)

Aston Villa vildi fá Spánverjann Oihan Sancet til liðsins en hann skrifaði undir nýjan samning við Athletic Bilbao á dögunum. (TeamTalk)

Tottenham og PSG hefur boðist að kaupa hinn 28 ára gamla varnarmann Manchester City, Aymeric Laporte. (90min)

Real Madrid mun ekki selja Ferland Mendy á minna en 53 milljónir punda en Arsenal, Man City og Newcastle hafa áhuga á þessum 27 ára gamla frönskum bakverði. (Fichajes)

Carlo Ancelotti hefur staðfest það að Brasilía vill fá hann til að taka við landsliðinu. Hann ætlar að virða samning sinn við Real Madrid. (ESPN)

Manchester City vill kaupa Ansu Fati frá Barcelona en faðir þennan tvítuga leikmanns er ekki sáttur með framkomuna sem hann fær hjá Börsungum. (Football Insider)

Vincent Kompany, stjóri Burnley, vill fá Hollendinginn Bart Verbruggen en hann er markvörður Anderlecht. (Sun)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner