Gabríel Snær Hallsson hefur stimplað sig inn sem hluti af Breiðabliksliði sem ætlar sér stóra hluti í sumar. Hann spilaði einn leik 2023 og á síðasta tímabili lék hann tólf leiki í Bestu deildinni.
Hann er fæddur 2007 og getur bæði spilað í bakverðinum og á miðsvæðinu. Hann á að baki 15 leiki með yngri landsliðunum og hefur í þeim skorað eitt mark. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Hann er fæddur 2007 og getur bæði spilað í bakverðinum og á miðsvæðinu. Hann á að baki 15 leiki með yngri landsliðunum og hefur í þeim skorað eitt mark. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Gabríel Snær Hallsson
Gælunafn: Gabbi eða Gabe
Aldur: 19 ára
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti leikurinn minn var í síðasta leiknum okkar í Bestu árið 2023 á móti Stjörnunni. 0-2 tap.
Uppáhalds drykkur: Er háður nocco
Uppáhalds matsölustaður: Serrano og Dominos
Uppáhalds tölvuleikur: Fifa þegar hann er ný kominn út
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Outer Banks og Snowfall
Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir og Drake
Uppáhalds hlaðvarp: FM95BLÖ
Uppáhalds samfélagsmiðill: average 5klst á dag á TikTok svo verð að segja það + Instagran
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fotbolti.net eða Moodle.mk
Fyndnasti Íslendingurinn: Steindi jr
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst:
Tu matt saekja pontunina kl:16:09 i Skógarlind 2 Kvedja Domino's Pizza. (Hehe eins og eg sagði besti matsölustaður)
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei segja aldrei, saying frá Valgeir Valgeirs
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Lamine Yamal
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Gunni Birgis
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Tómas Orri getur verið vel þreyttur.
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Lionel Messi
Sætasti sigurinn: Hmmm líklega þegar við tryggðum okkur sæti í conference league, það var hellað
Mestu vonbrigðin: Tapa úrslitaleik í bikar í 2. flokki á móti Skaganum. Það var vel þreytt
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Karl Ágúst! Alvöru chemistry á milli okkar og Jonna. Unplayable tríó
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Arnar Bjarki er algjör gæði
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Ásgeir Helgi on his day gadem
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Hrafnhildur Salka
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Lionel Messi
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Úff veit ekki. Kannski bara að það mætti röfla aðeins í dómara án þess að fá spjald fyrir það
Uppáhalds staður á Íslandi: Salalaug og Arena
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Í síðasta leik gegn FH í Lengjubikarnum gerðu þeir skiptingu en enginn fór útaf. Þannig það var 11 vs 12 í smá tíma.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Ég fæ mér alltaf serrano 3 klst fyrir leik og banana 30 mín fyrir leik. Síðan tek ég alltaf sömu teygjur fyrir leik
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Nee voða lítið nema bara Pílan um jólin
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Hef alltaf verið Nike mercurial en er í phantom núna
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: var í alvöru brasi í dönsku
Vandræðalegasta augnablik: hmmmm líklega þegar ég skoraði í vitlaust mark eftir að vera tekinn út af í fyrri halfleik en koma inn á í seinni á Orkumótinu í Eyjum
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Myndi bjóða Eystein Erni, Steinda jr og Kevin Hart. Top 3 fyndnustu manneskjur sem ég veit um
Bestur/best í klefanum og af hverju: Davíð Helgi alltaf jafn sprækur í klefa og svo náttúrulega Hvolpasveitin í Blix.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Væri til í að sjá Ágúst Orra taka þátt í Love Island. Það væri alvöru content.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Ég er google maps. Ef ég fer einhverja leið einu sinni mun ég alltaf muna hana
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Hvað Jakob Gunnar getur verið drep leiðinlegur og boring gaur
Hverju laugstu síðast: Í spurningunni fyrir ofan ^ Kobbi er kóngurinn
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: hlaup án bolta og gym. Hata gymið
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ágúst Orri er náttúrulega unreal content creator, myndi spyrja um smá tips frá honum
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Mætið á völlinn! Þetta verður geggjað


