02.04.26
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 2. sæti
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
1. ?
2. Breiðablik, 130 stig
3. Stjarnan, 120 stig
4. ÍA, 102 stig
5. KR, 90 stig
6. Valur, 88 stig
7. KA, 74 stig
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig
Um liðið: Eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar árið 2024, þá fóru hlutirnir svolítið út af sporinu hjá Blikum í fyrra. Þeir fóru ágætlega af stað og voru í byrjun móts í titilbaráttu en þegar leið á tímabilið þá hættu hlutirnir að ganga upp, það gekk skelfilega að ná í úrslit og liðið spilaði ekki skemmtilegan fótbolta. Blikar fóru heldur ekki langt í Mjólkurbikarnum. Seint á tímabilinu réðist Breiðablik í þjálfarabreytingar og Halldór Árnason, sem hafði skilað tveimur Íslandsmeistaratitlum - einum sem aðstoðarþjálfari og einum sem aðalþjálfari - var látinn fara. Frammistaða liðsins batnaði aðeins í kjölfarið en það dugði ekki til að ná Evrópusæti. Að lokum munaði þó aðeins einu sláarskoti að Blikar myndu komast í Evrópu því Höskuldur Gunnlaugsson var hársbreidd frá því að gera sigurmark í Garðabænum gegn Stjörnunni í hreinum úrslitaleik um Evrópusæti. Liðið sýndi jákvæð merki í Sambandsdeildinni og það er vonandi fyrir græna hluta Kópavogs að þeir taki það með sér inn í komandi keppnistímabil.
Þjálfarinn: Ólafur Ingi Skúlason tók við stjórnartaumunum hjá Blikum þegar Halldór Árnason var látinn taka pokann sinn. Mörg félög höfðu reynt að fá Ólaf Inga, þar á meðal KR og Valur, en þegar hann fékk símtalið frá Breiðabliki þá ákvað hann að stökkva á tækifærið. Ólafur Ingi er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður. Hann var atvinnumaður um 15 ára skeið, meðal annars í Englandi, Svíþjóð og Tyrklandi. Hann þjálfaði U21 ára landsliðið í eitt og hálft ár og var þar á undan með U19 landsliðið. Hann hefur aðeins einu sinni áður starfað hjá félagsliði en þá var hann í þjálfarateymi Fylkis er leikmannaferillinn var að klárast. Óli þykir einn efnilegasti þjálfari landsins og verður spennandi að sjá hvernig honum vegnar í Kópavoginum.
Styrkleikar: Blikar eru með stórkostlegan leikmannahóp og eru með mikinn fjölda leikmanna sem hefur unnið titla og þekkir sigurtilfinninguna. Það er mikil reynsla í hópnum og margir leikmenn þarna sem hafa spilað lengi saman, jafnvel alveg síðan í yngri flokkunum. Miðjan hjá Blikum er gífurlega sterk þar sem þeir eru með Höskuld Gunnlaugsson fremstan í flokki en hann er jafnframt einn mesti leiðtogi deildarinnar. Höskuldur er frábær leikmaður og á sínum degi einn allra besti leikmaður deildarinnar, en hann þarf að finna aftur töfrana frá 2024. Vörnin ætti jafnframt að geta verið ein sú besta í deildinni með einn besta markvörð deildarinnar fyrir aftan sig, ef ekki bara þann besta.

Breiðablik fagnar marki í Sambandsdeildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lykilmenn: Anton Ari Einarsson og Höskuldur Gunnlaugsson
Í Antoni Ara eru Blikar með einn besta markvörð deildarinnar, ef ekki þann besta. Hefur verið hluti af landsliðshópnum undanfarin misseri sem þriðji markvörður og það segir sitt. Hann er líka maður sem elskar að vinna titla eins og hann hefur sýnt undanfarin ár. Höskuldur var ekki upp á sitt besta á síðasta tímabili en það vita allir sem fylgjast með íslenskum fótbolta hvað í honum býr. Var besti leikmaður deildarinnar 2024 og hefur getuna til þess að vera það aftur í ár. Hann er líka magnaður leiðtogi fyrir þetta Blikalið og drífur liðið áfram innan sem utan vallar.
Gaman að fylgjast með: Ágúst Orri Þorsteinsson
Það eru margir sem eru að tippa á það að Ágúst Orri muni springa út í sumar. Hann er virkilega hæfileikaríkur leikmaður sem hefur sýnt flotta spretti en það verður gaman að sjá hvort þetta verði sumarið hans. Hann var virkilega flottur í leikjunum í Sambandsdeildinni og hefur spilað vel með U21 landsliðinu upp á síðkastið. Það hefur verið áhugi á honum erlendis frá og það er alls ekki ólíklegt að hann verði kominn í atvinnumennsku eftir þetta tímabil. Þarf að bæta við sig mörkum og stoðsendingum.
Spurningarnar: Ná menn að rífa sig upp eftir vonbrigðin í fyrra? Nær Höskuldur að finna sitt besta form? Bæta þeir við sig sóknarmanni?

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Komnir:
Ívar Örn Árnason frá KA
Jónatan Guðni Arnarsson frá Svíþjóð
Dagur Örn Fjeldsted frá FH (var á láni)
Tumi Fannar Gunnarsson frá Fylki (var á láni)
Jón Sölvi Símonarson frá ÍA (var á láni)
Farnir:
Damir Muminovic í Grindavík
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni frá Fram)
Tobias Thomsen til Danmerkur
Þorleifur Úlfarsson til Bandaríkjanna
Brynjar Atli Bragason til Svíþjóðar


Höskuldur er geggjaður fyrirliði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. Anton Ari Einarsson (m)
33. Gylfi Berg Snæhólm (m)
55. Jón Sölvi Símonarson (m)
2. Kristinn Narfi Björgvinsson
3. Andri Rafn Yeoman
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
6. Arnór Gauti Jónsson
7. Höskuldur Gunnlaugsson
8. Viktor Karl Einarsson
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson
11. Aron Bjarnason
13. Anton Logi Lúðvíksson
14. Gabríel Snær Hallsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
16. Dagur Örn Fjeldsted
17. Valgeir Valgeirsson
18. Davíð Ingvarsson
19. Kristinn Jónsson
21. Viktor Örn Margeirsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
25. Tumi Fannar Gunnarsson
31. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
Jónatan Guðni Arnarsson
Fyrstu fimm leikir Breiðablik:
10. apríl, Víkingur R. - Breiðablik (Víkingsvöllur)
17. apríl, Breiðablik - ÍA (Kópavogsvöllur)
22. apríl, Keflavík - Breiðablik (HS Orku völlurinn)
27. apríl, Breiðablik - Þór (Kópavogsvöllur)
3. maí, ÍBV - Breiðablik (Hásteinsvöllur)
Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.

Anton Ari er einn besti markvörður deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri er leikmaður sem margir spá að muni springa út í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Örn kom frá KA.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jónatan Guðni er efnilegur leikmaður sem kom frá Norrköping.
Mynd: Breiðablik

Damir Muminovic fór í Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Valur þarf að gera betur en á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristófer Ingi hefur verið orðaður við Val en útlit er fyrir að hann verði áfram í Kópavogi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar þurfa meira frá Viktori Karli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Rafn Yeoman, herra Breiðablik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað gera Blikar í sumar?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

