Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 17:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mjólkurbikarinn: Mörk í sitthvoru bæjarfélaginu komu Fylki áfram
Fylkismenn áfram í næstu umferð.
Fylkismenn áfram í næstu umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Tyrfingsson hefur verið funheitur á undirbúningstímabilinu.
Guðmundur Tyrfingsson hefur verið funheitur á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 2 - 0 KFA
1-0 Milan Jelovac ('2 , sjálfsmark)
2-0 Guðmundur Tyrfingsson ('32 )
Lestu um leikinn

Lengjubikarsmeistararnir í Fylki urðu í dag fyrsta lagið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins með því að leggja KFA að velli. Fylkir verður í Lengjudeildinni í sumar en KFA í 2. deild.

Leikurinn hófst klukkan 14:00 á tekk-vellinum í Árbæ en eftir rúmlega 20 mínútna leik stöðvaði Gunnar Oddur Hafliðason, dómari leiksins, leikinn vegna veðurs. Völlurinn var snæviþakinn og ekki hægt að sjá línuarnar á vellinum. Þá var staðan í leiknum 1-0 fyrir heimamönnum því Milan Jelovac, markvörður KFA, missti hornspyrnu Arnórs Breka Ásþórssonar í netið.

Ákveðið var að síðustu 70 mínútur leiksins eða svo í Skessunni í Hafnarfirði, öðru bæjarfélagi, og hófst leikurinn aftur um klukkutíma eftir að hann var stöðvaður í Árbænum.

Á 32. mínútu skoraði Guðmundur Tyrfingsson svo annað mark fyrir Fylki eftir undirbúning frá Bjarka Steinsen Arnarssyni.

„Bjarki hleypur upp hægri kantinn og kemur með góðan bolta fyrir sem Guðmundur Tyrfingsson klárar vel," skrifaði Guðmundur Jónasson í lýsingu leiksins.

KFA komst í mjög góða stöðu um miðbik seinni hálfleiks til að minnka muninn en Jawed Abd El Resak gerði ekki nógu vel og Ólafur Kristófer Helgason í marki Fylkis þurfti ekki að gera mikið til að verja. Mörkin urðu ekki fleiri í þessum skrítna leik og Fylkir verður í pottinum þegar dregið í næstu umferð.
Slapp
banner