Fotbolti.net
02.04.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Leikur Fylkis og KFA stöðvaður vegna veðurs - Kláraður í Skessunni

Völlurinn snæviþakinn.

Völlurinn snæviþakinn.

Canon

Mynd: Livey/Skjáskot

Mjólkurbikarinn
Gunnar Oddur Hafliðason hefur stöðvað leik Fylkis og KFA í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins vegna veðurs.

Aðstæður á tekk-vellinum í Árbæ voru ekki góðar og sást ekki í línur á vellinum vegna snjókomu.

Gunnar Oddur stöðvaði leikinn á 24. mínútu og var ákveðið að leikurinn yrði kláraður inni í Skessunni í Hafnarfirði.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 0 KFA
Staðan í leiknum var 1-0 fyrir heimamenn í Fylki en það var Milan Jelovac, markvörður KFA, sem varð fyrir því óláni að missa boltann í eigið net strax á 2. mínútu eftir hornspyrnu Fylkis.

Leikmenn munu fá um tíu mínútna upphitun í Skessunni og er áætlað að leikurinn hefjist aftur um klukkan 15:30.

Ólíkt því sem gerðist fyrr í vetur á sama velli, þegar FH heimsótti Fylki, ákvað dómarinn að stöðva yrði leikinn. Í leik FH og Fylkis voru það FH-ingar sem tóku þá ákvörðun að mæta ekki til leiks í seinni hálfleik vegna aðstæðna.

Livey sýnir það sem eftir lifir leiks beint frá Skessunni og má sjá útsendinguna hér að neðan:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.