Emil Hallfreðsson kom inn á sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Padova vann 1-0 sigur gegn Sambenedettese í lokaumferð ítölsku C-deildarinnar í dag.
Padova þurfti að vinna þennan leik og treysta á það að Perugia myndi ekki vinna sinn leik á meðan. Perugia vann hins vegar sinn leik gegn FeralpiSalo, 0-2.
Perugia og Padova enda með jafnmörg stig og en Padova vinnur deildina á innbyrðis viðureignum og fer því beint upp í Serie B fyrir næstu leiktíð.
Emil og félagar í Padova þurfa núna að fara í umspil um sæti í B-deildinni á næstu leiktíð.
Athugasemdir