Anton: Þetta er svipað og með veðurspánna það er lítið að marka þetta

Anton Ingi Rúnarsson þjálfari Grindavíkur

Mynd: Grindavík/Facebook

Anton Ingi Rúnarsson þjálfari Grindavíkur

Mynd: Grindavík/Facebook

Fram tók á móti Grindavík núna í kvöld þegar liðin hófu göngu sína í Lengjudeild kvenna en liðin mættust á Framvellinum í Úlfarsárdal.
Grindavík komst yfir strax á annarri mínútu en Fram endaði þó hálfleikinn með forystuna 2-1. Eftir nokkuð jafnan seinni hálfleik náði Grindavík svo að jafna og liðin deildu stigi að lokum.
„Þetta er svona smá svekkjandi miðað við færið sem fengum í seinni hálfleik og sérstaklega undir lokin þegar hún slapp í gegn og skaut fram hjá. Við vorum að vonast eftir 3 stigum en úr því sem var komið í 2-1 þá tekur maður stigið hér á Framvellinum.“ Sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur, eftir leikinn í kvöld.
Fram fékk vítaspyrnu í lok fyrri hálfleiks en Anton var ósammála þeim dómi: „Nei, ég vil nú ekki vera sammála því. Mér fannst markmaðurinn vera kominn með boltann. Þetta var bara öxl í öxl og hún var sterkari en hin. Fyrst hann dæmdi á þetta hefði maður sjálfur viljað fá víti í fyrri hálfleik þegar hún hrinti Ásu á markmanninn í hinu liðinu.“
Grindavík var spáð í áttunda sæti af Fótbolta.net fyrir mót, aðspurður að því hafði hann þetta að segja: „Við skjótum hærra en áttunda sætið. Þetta er bara spá og þetta er svipað og með veðurspánna, það er lítið að marka þetta.“
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.





