Aron Sigurðarson leikmaður KR var valinn leikmaður aprílmánaðar í Bestu deild karla.
Hann hlaut 58% atkvæða í kosningu sem var á forsíðu Fótbolta.net þar sem hægt var að kjósa milli fjögurra tilnefndra.
Hann hlaut 58% atkvæða í kosningu sem var á forsíðu Fótbolta.net þar sem hægt var að kjósa milli fjögurra tilnefndra.
Aron fann sig ekki í fyrstu umferð en er búinn að vera algjörlega óstöðvandi síðan og skorað fimm mörk og átt þrjár stoðsendingar fyrir KR sem er með fullt hús á toppi deildarinnar.
Niðurstaðan var kynnt í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þar sem Aron var í viðtali. Hann verður í eldlínunni með KR gegn Val í stórleik á Hlíðarenda í kvöld.
Hver er leikmaður aprílmánaðar í Bestu deildinni?
58% Aron Sigurðarson - KR (1274)
24% Elías Már Ómarsson - Víkingur (523)
11% Anton Ari Einarsson - Breiðablik (233)
8% Hólmar Örn Eyjólfsson - Valur (166)




