Fotbolti.net
02.06.25 - 08:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ísak Bergmann: Veit að ekkert sem ég segi mun láta ykkur líða betur

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Ísak Bergmann Jóhannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson segir í færslu á samfélagsmiðlum að hann skilji reiði stuðningsmanna Fortuna Düsseldorf með ákvörðun hans að fara til Köln.

Ísak Bergmann er 22 ára gamall Skagamaður sem hefur spilað í atvinnumennsku síðustu sex árin. Hann hefur varið síðustu tveimur tímabilum hjá Düsseldorf og komist í mikið uppáhald hjá stuðningsmönnum félagsins.
Stuðningsmenn Düsseldorf gjörsamlega trylltir út af fréttunum um Ísak
TENGT EFNI

Stuðningsmenn Düsseldorf gjörsamlega trylltir út af fréttunum um Ísak

Þeir voru því mjög reiðir þegar hann ákvað að skrifa undir hjá erkifjendunum. Köln virkjaði 5,5 milljón evra riftunarákvæði í samningi hans.

„Ég veit að ekkert sem ég segi mun láta ykkur líða betur," segir Ísak við stuðningsmenn Fortuna. „Ég skil hvernig ykkur líður."

„Ég hef hugsað mikið til ykkar og þessi ákvörðun var ekki auðveld. En ungur strákur átti draum um að spila í Bundesligunni og núna fær þessi strákur tækifæri til að upplifa drauminn."

„Ég veit að mörg ykkar munu hata mig en tilfinningar mínar gagnvart félaginu eru þær sömu. Riftunarákvæðið var virkt og ég þurfti að taka ákvörðun."

Ísak er þakklátur fyrir tíma sinn hjá félaginu. „Þessi tvö ár hafa verið algjörlega mögnuð. Ég hef hitt stórkostlegt fólk, vini til lífstíðar og minningar sem verða í hjarta mínu að eilífu. Eins og ég segi, þá skil ég ykkar tilfinningar og virði þær. En ungi strákurinn innra með mér tók ákvörðunina og átti sér draum," segir Skagamaðurinn.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.