Stuðningsmenn Düsseldorf gjörsamlega trylltir út af fréttunum um Ísak

Ísak er á leið til Köln.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur síðustu ár leikið með Düsseldorf.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak er á leið til Köln.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Bergmann virðist vera á leið til Köln sem vann þýsku B-deildina í vetur. Düsseldorf endaði í sjötta sæti.

Ísak Bergmann á leið til erkifjendanna fyrir 800 milljónir
Þetta eru mjög áhugaverð skipti því það er mikill rígur á milli Köln og Düsseldorf, en stuðningsmenn síðarnefnda félagsins hafa lýst yfir óánægju sinni með þetta allt saman. Einn stuðningsmaður beindi kveikjara að treyju Ísaks.
Hér fyrir neðan má sjá brot af umræðunni á samfélagsmiðlinum X sem hét áður Twitter.
„Hvernig getur einhver verið svona mikill málaliði," skrifar einn og bætir við: „Ísak hefur kysst merkið í hverjum einasta leik og talað um að draumur sinn sé að spila fyrir Fortuna í Bundesligunni. Hann á að aldrei að koma til Düsseldorf aftur."
Þá eru aðrir sem óska þess að Ísak meiðist illa og hann kallaður Júdas.
En stuðningsmenn Köln, þeir eru glaðir þar sem þeir eru að fá frábæran leikmann í sitt lið.
Ísak átti mjög gott tímabil með Düsseldorf á nýliðinni leiktíð, hljóp manna mest í þýsku B-deildinni, skoraði ellefu mörk og lagði upp sex í deildinni. Skagamaðurinn varð 22 ára í mars og er í landsliðshópnum sem kemur saman eftir helgi.
ich bin isak johannessons haushaltshilfe und hab das grad hier in seinem bett gefunden?? bei aller rivalität: das geht gar nicht liebe düsseldorfer! pic.twitter.com/XUB6busgsZ
— Ísak Jóhannesson (@luro1909) May 31, 2025
würdet ihr sagen der johannesson wechel wurde bei der fortuna aus düsseldorf entspannt aufgenommen pic.twitter.com/TXxbAfFFAk
— theo (@lauternjockel) May 31, 2025
Johannesson wechselt WO hin?? pic.twitter.com/tgQnHfYYnI
— Basti (@basti_fortuna) May 31, 2025
Ganz bitter - Unser mittelfeldspieler isak johannesson hat sich im zweikampf mit dem hsv spieler elfadli das kreuzband gerissen und fällt für den rest der saison aus.
— fabi (@scopedf95) May 31, 2025
Die jungs und ich pic.twitter.com/UzHiOCohGA

Hefur síðustu ár leikið með Düsseldorf.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





