Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 14:21
Elvar Geir Magnússon
Fyrirliði Jórdaníu var frá í ár en er tilbúinn fyrir HM
Mousa Al-Tamari skoraði sex mörk fyrir Rennes á liðnu tímabili
Mousa Al-Tamari skoraði sex mörk fyrir Rennes á liðnu tímabili
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Jórdanía hefur tilkynnt 26 manna hóp sinn fyrir HM en þetta verður í fyrsta sinn sem þjóðin er meðal þátttökuliða á heimsmeistaramóti.

Fyrirliðinn Ehsan Haddad er í hópnum en þessi reynslumikli varnarmaður, sem spilar fyrir Al-Hussein í Jórdaníu, var frá í um eitt ár vegna meiðsla.

Meðal annarra leikmanna í jórdanska hópnum má nefna Musa Al-Taamari hjá Rennes.

Hann er stærsta stjarna Jórdaníu og maðurinn sem getur breytt leikjum upp á eigin spýtur. Kantmaðurinn varð fyrstur Jórdana til að spila í einni af fimm stærstu deildum Evrópu þegar hann fór til Montpellier. Al-Taamari er þekktur fyrir hraða, tækni og hæfileikann til að keyra á varnarmenn og hann var algjör lykilmaður þegar Jórdanía fór óvænt alla leið í úrslitaleik Asíumótsins.

Jórdanía er í riðli með Austurríki, Alsír og Argentínu.

Markverðir: Yazeed Abulaila (Al-Hussein), Abdullah Al-Fakhouri (Al-Wehdat), Noor Bani Attiah (Al-Faisaly).

Varnarmenn: Abdallah Nasib (Al-Zawraa), Ehsan Haddad, Saed Al-Rosan, Saleem Obaid (Al-Hussein), Yazan Al-Arab (FC Seoul), Mohammad Abualnadi (Selangor), Husam Abu Dahab, Anas Banawi (Al-Faisaly), Mohannad Abu Taha (Al-Quwa Al-Jawiya), Mohammad Abu Hasheesh (Al-Karma).

Miðjumenn: Noor Al-Rawabdeh (Selangor), Nizar Al-Rashdan (Qatar), Ibrahim Saadeh (Al-Karma), Rajaei Ayed, Mahmoud Al-Mardi (Al-Hussein), Amer Jamous (Al-Zawraa), Mohammad Al-Dawoud (Al-Wehdat).

Sóknarmenn: Mousa Al-Tamari (Rennes), Odeh Al-Fakhouri (Pyramids), Mohammad Abu Zrayq (Raja Casablanca), Ali Azaizeh (Al-Shabab), Ibrahim Sabra (Lokomotiva Zagreb), Ali Olwan (Al-Sailiya).

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner