Fotbolti.net
02.07.17 - 22:11
Mist Rúnarsdóttir

Lillý Rut: Allt í rugl í seinni

Auglýsing
Lillý Rut og félagar fara inn í EM-fríið í góðri stöðu á toppi deildarinnar

Lillý Rut og félagar fara inn í EM-fríið í góðri stöðu á toppi deildarinnar

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Þetta er geggjað. Það eru svo flottar stelpur í þessu liði og ég vissi alveg að við værum að fara að vinna þennan leik. Við vorum aldrei að fara að gefast upp og þetta var bara geggjað,“ sagði kampakát Lillý Rut Hlynsdóttir eftir gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur á Breiðablik. Með sigrinum styrkir Þór/KA stöðu sína á toppi deildarinnar en þar eru þær með 6 stiga forskot á næstu lið.
Eftir heldur rólegan fyrri hálfleik var mikið fjör í þeim seinni. Hvað gerðist eiginlega?

„Það fór bara allt í rugl í seinni allsstaðar, en þetta var frábært og mikil barátta. Við gáfumst ekki upp“ sagði Lillý Rut en bæði lið spiluðu mjög fast og gáfu ekkert eftir. Sjálf var Lillý svolítið lemstruð eftir leik. Með kælingu á annari höndinni og bundið um hægri fót.

„Þetta eru bara smá eymsli. Ekkert alvarlegt,“ sagði Lillý sem hefur sjaldan spilað svona harða leiki.

„Þessi var með þeim harðari. Það er langskemmtilegast.“
Nú tekur við mánaðarlöng pása á Íslandsmótinu og toppliðið nýtir hana meðal annars til að fara í æfingaferð og fylgjast með Evrópumótinu.

„Við erum að fara í æfingaferð til Hollands sem er bara frábært og hjálpar liðinu að þjappa sér ennþá betur saman.“

Nánar er rætt við varnarmanninn öfluga í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.