Japaninn Yoshinori Muto er að yfirgefa lið Newcastle og er á leið aftur til heimalandsins.
Þetta kemur fram á Sky Sports í kvöld en þessi 29 ára gamli leikmaður stóðst engan veginn væntingar hjá Newcastle í þrjú ár.
Muto kom til Newcastle frá Mainz árið 2018 en hann hafði skorað 20 deildarmörk í 66 leikjum í Þýskalandi.
Muto tókst hins vegar aðeins að skora eitt deildarmark fyrir Newcastle sem og eitt deildarmark á láni hjá Eibar á síðustu leiktíð.
Vissel Kobe er nú að tryggja sér hans þjónustu en Newcastle borgaði á sínum tíma 10 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Athugasemdir