Fotbolti.net
02.09.16 - 20:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Heiðar Ægis: Þetta var eins og handbolti

Auglýsing
Heiðar Ægis: Þetta var eins og handbolti
Canon

Mynd: KSÍ

<i>„Þetta var erfið fæðing fyrir okkur í dag, en við vorum bara þolinmóðir og héldum áfram að ýta á þá og þá kom þetta á endanum,\"</i> sagði Heiðar Ægisson hetjan hjá U21 landsliðinu í viðtali við heimasíðu KSÍ eftir 1-0 sigur á Norður-Írum í kvöld.

Ísland er í ágætis málum í sínum riðli í undankeppni EM 2017 og eru komnir á toppinn eftir þennan sigur. Frakkar geta þó endurheimt toppsætið með sigri á Úkraínu í kvöld.
„Þetta var eins og handbolti, þeir voru mjög aftarlega, en við vorum þolinmóðir og þetta kom loksins í endann.\"

Heiðar segir að tilfinningin hafi verið mjög ljúf að sjá boltann í netinu. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Heiðars með U21 landsliðinu og hann ákvað að fagna því með stæl.

„Þetta var geggjuð tilfinning, að fá boltann frá Ævari, setja hann í skeytin og fagna þessu vel og innilega.\"

Viðtalið við Heiðar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.