23.07.26 - 20:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sambandsdeildin: Guðmundur Baldvin hetja Stjörnunnar

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stjarnan vann finnska liðið Ilves á Samsungvellinum í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Gestinrir komust í fínt færi eftir tæplega hálftíma leik en Teemu Hytönen skaut yfir. Benedikt Warén fékk síðan færi stuttu síðar en skaut beint á markið.
Örvar Eggertsson fékk gott færi eftir rúmlega klukkutíma leik en náði ekki krafti í skallann.
Gustav Kjeldsen fékk gott færi þegar um stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en Faris Krkalic í marki gestanna varði vel frá honum.
Guðmundur Baldvin Nökkvason braut isinn þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma þegar hann skoraði með skoti fyrir utan teiginn.
Það reyndist sigurmarkið og Stjarnan fer því með forystu í seinni leikinn í Finnlandi á fimmtudaginn í næstu viku.