Elín Metta: Mér fannst við eiga góðan leik
Auglýsing

Elín Metta Jensen í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elín Metta Jensen í leiknum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst við eiga góðan leik, þetta var erfiðari leikur heldur en síðasti leikur og meiri þolinmæðisverk.'' Segir Elín Metta Jensen framherji Íslenska landsliðsins eftir 1-0 sigur á Slóvakíu í undankeppni EM í kvöld.
„Þær voru virkilega góðar í dag og ég er bara mjög ánægð með að ná þremur stigum.''
„Við vissum alveg að þær yrðu ansi fastar fyrir en þær voru jú vissulega þéttar varnarlega og það reyndist okkur svolítið erfitt.''
„Ég held að það hafi bara verið gríðarlega mikilvægt hvað við vorum jákvæðar og peppuðum hvor aðra inn á vellinum og það skilaði sér.''
„Við vissum að þetta yrði erfitt, við sáum hvernig þær spiluðu, aftarlega á vellinu og þéttar fyrir þannig að við vorum viðbúnar þessu.''
Undankeppni EM hófst á fimmtudaginn þar sem stelpurnar unnu 4-1 sigur á Ungverjalandi. Þær fylgdu eftir flottum leik á fimmtudaginn með 1-0 sigri í kvöld á Slóvakíu og eru komnar með 6.stig.
„Þetta hefur gengið eins og í sögu hjá okkur og er bara virkilega ánægð að hafa náð sex stigum hérna í þessu verkefni. Það er það sem við ætluðum okkur.''
Viðtalið í heild sinni má nálgast hér að ofan.