Fotbolti.net
02.09.23 - 17:25
Ingi Snær Karlsson

Róbert Jóhann: Svolítið reynsluleysi hjá stelpunum

Auglýsing
Róbert Jóhann, þjálfari Augnabliks

Róbert Jóhann, þjálfari Augnabliks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Svolítið reynsluleysi hjá stelpunum og komu ekki tilbúnar í fyrri hálfleikinn. Ekki alveg nógu kraftmiklar og áræðnar, þannig þær voru svolítið smeykar." sagði Róbert Jóhann, þjálfari Augnabliks eftir 7-0 tap gegn KR í dag.
Varstu sáttur með eitthvað í dag frá þínu liði?

„Já, svona kannski innkoman í seinni hálfleik. Við töluðum aðeins um það í hálfleik að við þyrftum að breyta þessu, koma með smá krafti. Þetta er flottar stelpur, ungar stelpur og góðar í fótbolta en það vantar þessa reynslu og þennan kraft sem þarf í meistaraflokks kvenna bolta."

Var erfitt að gíra sig upp í leikinn, nú þegar liðið er fallið?

„Nei, eða ég veit ekki hvað var í hausnum á þeim. Þetta á að vera forréttindi að fá að spila með meistaraflokki, þriðja flokks stelpur. Þær eru ennþá ungar og svolítið litlar í sér."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.