Fotbolti.net
29.06.26 - 18:28
Brynjar Ingi Erluson
Kjarninn

Byrjunarlið ÍA og Fram: Tvær breytingar hjá báðum liðum

Rúnar Már kemur aftur í byrjunarliðið

Rúnar Már kemur aftur í byrjunarliðið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA mætir Fram í lokaleik 12. umferðar Bestu deildar karla klukkan 19:15 á ELKEM-vellinum á Akranesi í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍA 0 - 2 Fram
Skagamenn gera tvær breytingar frá 5-3 tapinu gegn KR-ingum í síðustu umferð.

Rúnar Már Sigurjónsson kemur inn í liðið og tekur við fyrirliðabandinu og þá kemur Böðvar Böðvarsson einnig inn, en þeir Johannes Vall og Baldvin Þór Berndsen detta út. Baldvin er á bekknum en Vall ekki með.

Það eru sömuleiðis tvær breytingar hjá Fram sem tapaði fyrir Íslandsmeisturum Víkinga, 5-0, í síðustu umferð. Atli Þór Jónasson og Már Ægisson koma inn fyrir Vuk Oskar Dimitrijevic og Harald Einar Ásgrímsson. Haraldur tekur út leikbann vegna uppsafnaðra gulra spjalda en Vuk er á bekknum.

Byrjunarlið ÍA

Jón Sölvi Símonarson, Haukur Andri Haraldsson, Guðmundur Þórarinsson, Viktor Jónsson, Erik Tobias Tangen Sandberg, Rúnar Már S Sigurjónsson (fyrirliði), Ísak Máni Guðjónsson, Böðvar Böðvarsson, Ómar Björn Stefánsson, Markús Páll Ellertsson, Jón Gísli Eyland Gíslason

Byrjunarlið Fram

Viktor Freyr Sigurðsson, Þorri Stefán Þorbjörnsson, Róbert Hauksson, Frederico Bello Saraiva, Israel Garcia Moreno, Atli Þór Jónasson, Ægir Jarl Jónasson, Kennie Knak Chopart (fyrirliði), Már Ægisson, Freyr Sigurðsson, Sigurjón Rúnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik14+825
5Valur16-619
6Keflavík14-716
7ÍBV14-715
8Stjarnan15-815
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.