Fotbolti.net
02.09.26 - 07:00
Albert Guðmundsson

38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?

Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov

Auglýsing
38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

38 umferðir er eina hlaðvarpið á Íslandi tileinkað Fantasy Premier League

Canon

Mynd: Albert Guðmundsson

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.

Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í deildinni er lið Jóhanns Arnar Kjartanssonar sem situr á 216 stigum eftir 2 umferðir.

Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld.
Albert og Sindri mynda gott dúó með breiða skírskotun en Albert er mjög reynslumikill spilari og samkvæmt fplresearch.com besti Fantasy Premier League spilarinn á Íslandi. Sindri er reynsluminni og nálgast leikinn með örlítið öðrum hætti en þeir bestu í bransanum. Þar getur brugðið til beggja vona.

Fotbolti.net verður með draumaliðsdeild fyrir lesendur þar sem verður til mikils að vinna. Fyrstu verðlaun innihalda 100 þúsund kr. gjafabréf upp í ferð á enska boltann með Visitor, 12 rútur af Thule, treyju frá Boltamanninum, gjafabréf á Bullseye og gjafabréf á Matarkjallarann.

Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov

Þú finnur 38 umferðir á Instagram, TikTok og X @38umferdir þar sem verður gjafastuð í vetur.

Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.

Ef þú spilar Fantasy Premier League þá borgar sig að fylgjast með 38 umferðum.

Bruno Fernandes gerði eigendur sína glaða með 23 stigum í 2. umferð, 46 stig fyrir þá sem gáfu honum fyrirliðabandið

Bruno Fernandes gerði eigendur sína glaða með 23 stigum í 2. umferð, 46 stig fyrir þá sem gáfu honum fyrirliðabandið

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.