02.09.26 - 20:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Adam hlustaði á heilræði Eiðs Smára - „Fyrirmyndin mín"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson opnaði markareikninginn sinn fyrir KA um helgina þegar hann skoraði 2-2 jafntefli liðsins gegn Fram.
Adam Ægir gekk til liðs við KA frá Val í sumar. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymið í síðasta mánuði en Adam var spurður út í áhrif hans á liðið.
Adam Ægir gekk til liðs við KA frá Val í sumar. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymið í síðasta mánuði en Adam var spurður út í áhrif hans á liðið.
„Mér finnst Haddi virkilega góður þjálfari og ég er ánægður með hann. Auðvitað er Eiður Eiður Smári. Hann var fyrirmyndin mín þegar ég var yngri og þá fer maður upp á tærnar sjálfkrafa þegar hann kemur á svæðið. Það er virkilega gaman að fá hann og maður hlustar á hvert orð sem hann segir," sagði Adam.
Eiður Smári gaf Adam góð ráð fyrir leikinn.
„Hann sagði við mig í vikunni að ég væri að horfa svolítið mikið á markið þegar ég er að skjóta. Ég ákvað að hlusta á það og það virkaði."
Eiður Smári gaf Adam góð ráð fyrir leikinn.
„Hann sagði við mig í vikunni að ég væri að horfa svolítið mikið á markið þegar ég er að skjóta. Ég ákvað að hlusta á það og það virkaði."
Adam Ægir Pálsson gegn Fram!??#bestadeildin pic.twitter.com/Fu06KoH0ey
— Besta deildin (@bestadeildin) August 30, 2026


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
