02.09.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Arnór Sig með fyrirliðabandið í Grikklandi

Arnór er einn af lykilmönnum Kalamata

Mynd: Kalamata

Arnór er einn af lykilmönnum Kalamata

Mynd: Kalamata
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði gríska liðsins Kalamata í 2-2 jafntefli gegn Volos í bikarnum í gær.
Skagamaðurinn er kominn á fullt hjá Kalamata eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá Malmö í sumar.
Arnór var í byrjunarliðinu í síðasta heimaleik og hélt sæti sínu gegn Volos í kvöld. Ekki nóg með það heldur bar hann einnig fyrirliðabandið.
Hann fékk gult spjald á 15. mínútu og ellefu mínútum síðar komst Kalamata yfir. Arnór kom síðan við sögu í öðru marki liðsins þegar leikmaður Volos reif hann niður. Flestir bjuggust við aukaspyrnu en leikurinn fékk að halda áfram og Erik Hamza sendi boltann á Julian Bonetto sem skoraði.
Arnór var einn nokkurra leikmanna sem var tekinn af velli í hálfleik. Volos vann sig aftur inn í leikinn eftir hlé þegar Jan Hurtado minnkaði muninn áður en Matias Gonzalez jafnaði sjö mínútum fyrir leikslok.
Lokatölur urðu 2-2 en leikið er í deildarfyrirkomulagi í gríska bikarnum, líkt og í Meistaradeildinni. Fjögur efstu liðin fara beint í átta liða úrslit en liðin í fimmta til tólfta sæti fara í umspil um hin fjögur sætin.