Fotbolti.net
02.09.26 - 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Championship: Wrexham nældi í sinn fyrsta sigur

Kieffer Moore

Kieffer Moore

Canon

Mynd: EPA

Wrexham nældi í sinn fyrsta sigur í Championship deildinni þegar liðið vann sannfærandi sigur á Millwall í kvöld.

Zak Sturge varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark og koma Wrexham yfir. Issa Kabore átti fyrirgjöf en boltinn fór af Sturge og í netið.
Kieffer Moore bætti öðru markinu við þegar hann fékk nægan tíma að athafna sig og skoraði með skoti fyrir utan teiginn. Jacques Ekomie innsiglaði síðan sigur Wrexham.

Wrexham er með fimm stig eftir fjórar umferðir en Millwall er með sex stig.

Rumarn Burrell var hetja QPR þegar liðið vann Cardiff 2-1. QPR er í 2. sæti með 10 stig en Cardiff er aðeins með þrjú stig.

Burnley nældi í sitt annað stig þegar liðið gerði jafntefli gegn Middlesbrough sem er með sjö stig í 5. sæti. Þá gerðu West Brom og Charlton einnig jafntefli. Charlton er með tíu stig í 3. sæti en West Brom í 7. sæti með sjö stig.

Burnley 1 - 1 Middlesbrough
0-1 Aidan Morris ('23 )
1-1 Ugo Raghouber ('54 )

Millwall 0 - 3 Wrexham
1-0 Zak Sturge ('28 , sjálfsmark)
1-1 Kieffer Moore ('52 )
1-2 Jacques Ekomie ('69 )

QPR 2 - 1 Cardiff City
1-0 Rumarn Burrell ('36 )
2-0 Rumarn Burrell ('53 )
2-1 Perry Ng ('75 )

West Brom 1 - 1 Charlton Athletic
1-0 Callum Styles ('59 )
1-1 Tyreece Campbell ('69 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Swansea4+610
2QPR4+410
3Charlton Athletic4+310
4Wolves4+37
5Middlesbrough4+27
6Bristol City4+17
7West Brom4+17
8Birmingham4+16
9Sheffield Utd4+16
10Millwall4-26
11Wrexham4+25
12West Ham4+15
13Blackburn405
14Watford4-15
15Bolton4-14
16Derby County4-24
17Lincoln City4-24
18Southampton4+53
19Cardiff City4-13
20Norwich4-23
21Portsmouth4-33
22Stoke City4-53
23Burnley4-52
24Preston NE4-60
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.