02.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski bikarinn: Parma og Torino úr leik - Tveir vítaspyrnudómar teknir til baka

Dany Mota skaut Monza áfram í spennuleik

Mynd: EPA

Dany Mota skaut Monza áfram í spennuleik

Mynd: EPA
Parma og Torino eru óvænt úr leik í ítalska bikarnum eftir að hafa bæði tapað á heimavelli í gær.
Parma er úr leik í ítalska bikarnum eftir 2-0 tap gegn Cremonese. Bæði mörk gestanna komu í fyrri hálfleik en hinn tvítugi Simone Lottici Tessardi braut ísinn á fimmtu mínútu áður en Adin Licina, sem er aðeins 19 ára, bætti öðru marki við undir lok hálfleiksins.
Monza vann á sama tíma 1-0 sigur gegn Torino í Tórínó. Portúgalinn Dany Mota skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks, ellefu mínútum eftir að VAR hafði afturkallað vítaspyrnudóm Monza í vil.
Mikil dramatík var síðan undir lok leiks þegar Torino fékk vítaspyrnu. VAR greip aftur inn í og var dómurinn tekinn til baka, í annað sinn í leiknum. Monza hélt því út og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitin.
Torino 0 - 1 Parma
0-1 Dany Mota ('45 )
Parma 0 - 2 Cremonese
0-1 Simone Lottici Tessadri ('5 )
0-2 Adin Licina ('41 )