Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. október 2020 16:23
Elvar Geir Magnússon
Stór hópur hjá U21 - Þrír 17 ára í hópnum
Danijel Dejan Djuric.
Danijel Dejan Djuric.
Mynd: Hulda Margrét
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Hulda Margrét
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur tilkynnt hóp liðsins fyrir leiki gegn Ítalíu og Lúxemborg í undankeppni EM 2021. Ítalía er í öðru sæti riðilsins, stigi á undan Íslandi, en Lúxemborg er í neðsta sæti.

Ísland mætir Ítalíu föstudaginn 9. október á Víkingsvelli og hefst leikurinn kl. 15:30. Liðið leikur síðan gegn Lúxemborg ytra þriðjudaginn 13. október og hefst sá leikur kl. 15:00 að íslenskum tíma.

Þrír sautján ára leikmenn eru í hópnum. Ísak Bergmann Jóhannesson hjá Norrköping er áfram í hópnum. Þar eru líka Danijel Dejan Djuric sem er hjá Midtjylland og Hákon Arnar Haraldsson sem er hjá FC Kaupmannahöfn.

Arnar Þór ræddi við heimasíðu KSÍ um verkefnið sem framundan er og ástæðu þess að hópurinn er þetta stór:

„Hópurinn sem við erum að velja í þetta verkefni er augljóslega töluvert stærri en venjulega. Ástæðan fyrir þessu er einfaldlega sú að þeir leikmenn sem spila með liðum á Íslandi munu ekki ferðast með liðinu til Lúxemborgar í seinni leikinn vegna sóttvarnareglna á landamærum Íslands, því þeir þyrftu að fara í 5-6 daga sóttkví við heimkomuna með tilheyrandi áhrifum á mótahaldið innanlands," segir Arnar.

„Þessir leikmenn eru að spila með liðum sem eru í harðri baráttu á lokaspretti Pepsi Max deildarinnar og við viljum gefa þeim tækifæri á að taka þátt í þeirri baráttu með sínum félagsliðum. Mögulega væri hægt að leysa þetta með því að lengja mótið langt fram í nóvember en að mínu mati væri það ekki félögunum og leikmönnunum eða mótinu til heilla."

„Þeir leikmenn sem koma inn í hópinn fyrir seinni leikinn eru allt strákar sem við erum mjög spenntir fyrir að fá að vinna með og við treystum þeim 100% fyrir því að klára verkefnið með sóma. Þetta eru leikmenn sem annað hvort hafa verið í hóp hjá okkur áður, verið mjög nálægt því að komast í hóp, eða þá aðeins yngri leikmenn sem hafa staðið sig vel með U17 og U19 ára liðunum okkar. Við búum einfaldlega við þann lúxus að geta valið marga mjög góða leikmenn í þetta U21 lið."

Hópurinn:
Patrik Sigurður Gunnarsson ** | Viborg FF
Elías Rafn Ólafsson ** | Fredericia
Hákon Rafn Valdimarsson * | Grótta
Jón Dagur Þorsteinsson * | AGF
Alex Þór Hauksson * | Stjarnan
Hörður Ingi Gunnarsson * | FH
Stefán Teitur Þórðarson * | ÍA
Brynjólfur Andersen Willumsson * | Breiðablik
Arnór Sigurðsson * | CSKA Moscow
Þórir Jóhann Helgason * | FH
Finnur Tómas Pálmason * | KR
Róbert Orri Þorkelsson * | Breiðablik
Valgeir Lunddal Friðriksson * | Valur
Alfons Sampsted ** | Bodö Glimt
Ari Leifsson ** | Strömgodset
Willum Þór Willumsson ** | BATE
Kolbeinn Birgir Finnsson ** | Dortmund
Sveinn Aron Guðjohnsen ** | OB
Ísak Óli Ólafsson ** | Sonderjyske
Valdimar Þór Ingimundarson ** | Strömgodset
Kolbeinn Þórðarson ** | Lommel
Ísak Bergmann Jóhannesson ** | IFK Norrköping
Andri Fannar Baldursson ** | Bologna
Axel Óskar Andrésson *** | Viking
Kristófer Ingi Kristinsson *** | PSV Eindhoven
Birkir Valur Jónsson *** | Spartak Trnava
Bjarki Steinn Bjarkason *** | Venezia
Danijel Dejan Djuric *** | FC Midtjylland
Hákon Arnar Haraldsson *** | FC Köbenhavn
Mikael Egill Ellertsson *** | SPAL

Athugið að leikmenn eru stjörnumerktir eftir því í hvaða leik/leikjum þeir taka þátt í.

*bara leikur gegn Ítalíu
** leikir gegn Ítalíu og Lúxemborg
*** bara leikur gegn Lúxemborg
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner