Arsenal hefur verið í harðri baráttu við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn undanfarin ár en Bukayo Saka er sannfærður um að tími Arsenal sé kominn að vinna titilinn.
Arsenal vann frábæran 2-0 sigur á PSG í Meistaradeildinni í gær en Thierry Henry, goðsögn hjá Arsenal og sérfræðingur hjá CBS, spurði Saka hvort Arsenal gæti unnið Englandsmeistaratitilinn í ár.
„Ég vil ekki setja allt of mikla pressu á okkur en ég tel að þetta sé okkar ár. Við höfum verið nálægt þessu undanfarin tvö ár og erum að nálgast enn frekar," sagði Saka.
Mikið hefur verið rætt og ritað um mikilvægi Rodri fyrir Man City og það var mikil blóðtaka fyrir liðið þegar hann sleit krossband í leik gegn Arsenal á dögunum.
Liðin eru bæði með 14 stig í 2. og 3. sæti, stigi á eftir Liverpool.