Fotbolti.net
02.11.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Mainoo: Einum sigri frá því að snúa þessu við

Mainoo: Einum sigri frá því að snúa þessu við
Canon

Mynd: Man Utd

Meistaradeild
Miðjumaðurinn Kobbie Mainoo hafði komið við sögu í öllum leikjum Manchester United á nýju tímabili þegar hann meiddist lítilvæglega í október.
Margir leikmenn Man Utd fjarverandi
TENGT EFNI

Margir leikmenn Man Utd fjarverandi

Hann mætti aftur á völlinn í 2-0 tapi gegn Chelsea um helgina og segir að tilfinningin í klefanum sé góð þrátt fyrir slæmt gengi. Rauðu djöflarnir eru aðeins með 7 stig eftir 9 umferðir í ensku úrvalsdeildinni og 3 stig eftir 3 umferðir í Meistaradeildinni.

Þá er liðið dottið úr leik í deildabikarnum eftir tap gegn Brighton.

„Okkur líður eins og við séum bara einum sigri frá því að snúa þessu við. Þetta hefur verið mjög erfið byrjun á tímabilinu, við erum ekki búnir að ná í þau úrslit sem við vildum en við verðum að horfa fram á veginn," segir Mainoo, sem gæti verið í byrjunarliðinu þegar Man Utd tekur á móti AS Roma í Meistaradeildinni annað kvöld.

Man Utd hefur aðeins unnið tvo leiki í öllum keppnum það sem af er tímabils, gegn Ipswich Town og Sabah Baku. Liðið er án sigurs í síðustu níu leikjum.

„Man United er risastórt félag og fólk um allan heim þekkir gildin okkar. Þegar ég horfi til baka á fortíð félagsins finn ég fyrir mikilli ábyrgð verandi uppalinn í akademíunni."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.