02.11.26 - 19:11
Ívan Guðjón Baldursson
Thelma lagði upp er Häcken varði titilinn

Mynd: Guðmundur Svansson

Mynd: Malmö

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Guðmundur Svansson

Íslensku atvinnukonurnar sem leika erlendis gerðu flotta hluti í leikjum dagsins í Skandinavíu.
Í sænska boltanum var hin bráðefnilega Thelma Karen Pálmadóttir í byrjunarliði Häcken sem fór illa með Íslendingana í Kristianstad og urðu lokatölur 4-1. Staðan var 3-0 í leikhlé.
Guðný Árnadóttir og Alexandra Jóhannsdóttir léku allan leikinn fyrir Kristianstad, sem leikur undir stjórn Nik Chamberlain, og fékk Elísa Lana Sigurjónsdóttir að spila seinni hálfleikinn.
Thelma Karen lagði fyrsta markið upp snemma leiks og gaf Elísa Lana stoðsendingu í því sem reyndist fánamark Kristianstad.
Häcken varði Svíþjóðarmeistaratitilinn með þessum sigri, þegar tvær umferðir eru eftir af deildartímabilinu. Kristianstad siglir lygnan sjó í 5. sæti.
Á sama tíma skildu Malmö og Norrköping jöfn í Íslendingaslag. Hlín Eiríksdóttir lék allan leikinn fyrir heimakonur í Malmö sem lentu undir snemma leiks gegn fallbaráttuliði Norrköping.
Norrköping hélt forystunni út venjulegan leiktíma og fékk Sigdís Eva Bárðardóttir að spreyta sig á lokakaflanum en tókst ekki að koma í veg fyrir jöfnunarmark í uppbótartíma. Lokatölur urðu því 1-1.
Malmö er öruggt með þriðja sæti sænsku deildarinnar sem gefur þátttökurétt í Evrópubikarnum, á meðan Norrköping er í harðri fallbaráttu. Liðið hefur verið að ná frábærum úrslitum að undanförnu og gæti endað á að bjarga sér á ævintýralegan hátt.
Að lokum varði Fanney Inga Birkisdóttir mark Vålerenga í 3-0 sigri gegn Lyn í norska boltanum, en var skipt af velli á 85. mínútu - vonandi ekki vegna meiðsla. Arna Eiríksdóttir var einnig í byrjunarliðinu og var skipt af velli á sama tíma og Fanney.
Liðin mættust í næstsíðustu umferð deildartímabilsins og siglir Vålerenga lygnan sjó í fjórða sæti, fjórum stigum frá Evrópusæti.
Hacken 4 - 1 Kristianstad
Malmo 1 - 1 Norrkoping
Valerenga 3 - 0 Lyn