02.11.26 - 20:21
Ívan Guðjón Baldursson
Félix skein án Ronaldo - Stórt tap hjá Ittihad

Mynd: EPA

Mynd: Al Ahli

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það var nóg um að vera í Meistaradeild Asíu í dag þar sem Al-Nassr vann stórsigur á útivelli gegn Pakhtakor í Úsbekistan.
Cristiano Ronaldo var ekki í hóp eftir að hafa skorað þrennu í síðasta deildarleik svo liðsfélagar hans sáu um markaskorunina í dag.
Joao Félix skoraði tvö og lagði eitt upp og þá átti Sadio Mané tvær stoðsendingar er lokatölur urðu 2-6. Al-Nassr er með 6 stig eftir 3 fyrstu umferðirnar.
Al-Ittihad tapaði þá óvænt á heimavelli gegn Al-Ain frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Danilo Pereira, Georginio Wijnaldum, Houssem Aouar, Steven Bergwijn og Youssef En-Nesyri voru meðal byrjunarliðsmanna í stórveldi Al-Ittihad sem steinlá.
Lokatölur urðu 1-4 fyrir Al-Ain en þekktasti leikmaður þeirra er Valentino Lazaro, fyrrum leikmaður Newcastle og Inter.
Al-Ahli gerði þá markalaust jafntefli gegn Al-Sadd í Katar. Roberto Firmino og Paulo Otávio voru í byrjunarliði Al-Sadd á meðan gestirnir skörtuðu stjörnum á borð við Ivan Toney, Francisco Trincao og Édouard Mendy í sínu byrjunarliði.
Al-Ahli er með 8 stig eftir 4 umferðir og situr Al-Sadd eftir aðeins með 2 stig.
Julian Quinones skoraði að lokum tvö og gaf stoðsendingu í stórsigri Al-Qadsiah og lagði Tijjani Reijnders einnig upp gegn Al-Gharafa í Katar. Julian Weigl var einnig meðal byrjunarliðsmanna.
Pakhtakor 2 - 6 Al-Nassr
Al-Ittihad 1 - 4 Al-Ain
Al-Sadd 0 - 0 Al-Ahli
Al-Gharafa 0 - 5 Al-Qadsiah
Al-Wasl 4 - 3 Al-Quwa Al-Jawiya
Tractor 2 - 2 Neftchi Fargona