Fotbolti.net
02.11.26 - 19:36
Ívan Guðjón Baldursson

Mac Allister heppinn að sleppa við rautt

Mac Allister heppinn að sleppa við rautt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jón Steinarr

Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Dermot Gallagher er dómgæslusérfræðingur Sky Sports og tjáir sig um helstu ágreiningsmálin eftir hverja umferð í ensku úrvalsdeildinni.
Carragher hraunar yfir Mac Allister - „Þetta er vandræðalegt"
TENGT EFNI

Carragher hraunar yfir Mac Allister - „Þetta er vandræðalegt"

Það var eitthvað af umdeildum ákvörðunum í leikjum helgarinnar, þá sérstaklega þegar Alexander Isak fékk ekki dæmda vítaspyrnu gegn Arsenal. Gallagher skilur að Andy Madley dómari hafi ekki dæmt vítaspyrnu miðað við sitt sjónarhorn, en er hissa að VAR-teymið hafi ekki skorist í leikinn. Hann talar þó ekki um augljós mistök, heldur um álitamál.

Augljós mistök áttu sér hins vegar stað á Villa Park þegar John McGinn klúðraði af vítapunktinum. McGinn átti að fá að taka vítaspyrnuna aftur eftir að Bernd Leno markvörður Fulham snerti markslána í aðdraganda spyrnunnar.

Markmenn mega ekki snerta slána meðan vítaskyttan er að undirbúa sig til að spyrna.

„Dómarateymið var að fylgjast með öðrum hlutum í vítaspyrnunni og hefur einfaldlega ekki tekið eftir þessu atviki, en þetta eru mistök," sagði Gallagher.

Gallagher tjáði sig einnig um rauða spjaldið sem Jean-Philippe Mateta fékk og rangstöðudóminn gegn Estevao í 2-0 sigri Chelsea gegn Manchester United. Hann er sammála báðum dómum, en í tilfelli Estevao var það VAR-kerfið sem dæmdi ótrúlega nauma rangstöðu.

Hann ræddi einnig um Alexis Mac Allister og voru fótboltasérfræðingar Sky sammála um að hegðun hans í tapi Liverpool gegn Arsenal hafi verið til skammar á köflum.

Gallagher segir að Mac Allister hafi verið heppinn að sleppa við rautt spjald í þessum leik. Hann fór í grimma tveggja fóta tæklingu gegn Ezri Konsa og vann boltann, en Konsa henti sér ekki í jörðina til að láta skoða atvikið betur.

„Hann er heppinn að hafa ekki farið í manninn því það má ekki tækla svona," sagði Gallagher.

Gallagher var að lokum sammála gulu spjöldunum sem Lisandro Martínez fékk í tapi Man Utd. Þá sagðist hann harma ummæli Andoni Iraola um að hvetja leikmenn til að henda sér í jörðina til að auka líkur á að dómarinn flauti eða atvikið sé skoðað nánar.
Mac Allister heppinn að sleppa við rautt
Canon

Mynd: EPA

Mac Allister heppinn að sleppa við rautt
Canon

Mynd: EPA

Mac Allister heppinn að sleppa við rautt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.