Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. desember 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Willock: Við höfum trú á Ljungberg
Joe Willock í baráttunni.
Joe Willock í baráttunni.
Mynd: Getty Images
Joe Willock, leikmaður Arsenal, segir að leikmenn liðsins hafi trú á Freddie Ljungberg við stjórnvölinn.

Ljungberg er tímabundið tekinn við stjórastöðunni hjá Arsenal eftir að Unai Emery var rekinn.

Fyrsti leikur undir stjórn Ljungberg var í 2-2 jafnteflinu gegn Norwich í gær.

„Í hreinskilni sagt þá vitum við að við þurfum að bæta okkur sem lið, hver sem er stjóri," sagði Willock.

„Freddie er stórkostlegur stjóri. Við höfum trú á honum og við erum að leggja hart að okkur í að reyna að bæta okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner