Gríðarlegur munur á frammistöðu Gylfa

Gylfi Þór Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi framlengdi við Víkinga fyrr í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Þór Sigurðsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson átti mjög gott tímabil í fyrra þegar Víkingur varð Íslandsmeistari. Hann hefur hins vegar tekið framförum í ár að mati Þorláks Árnason, fyrrum þjálfara ÍBV.
Fótbolti.net ræddi við Þorlák í aðdraganda stórleiks Víkings og KR. Gylfi kemur til með að spila lykilhlutverk í þeim leik.
Fótbolti.net ræddi við Þorlák í aðdraganda stórleiks Víkings og KR. Gylfi kemur til með að spila lykilhlutverk í þeim leik.

TENGT EFNI
Gylfi framlengir í Víkinni - „Akkúrat það sem við viljum frá honum"
„Í ár eru gæði liðsins sóknarlega muni meiri, Víkingar eru að fá fullt af mörkum og stoðsendingum frá nýju leikmönnunum, Óskari (Borgþórssyni) og Elíasi (Má Ómarssyni). Þá er Gylfi i mjög góðu standi og gríðarlegur munur á frammistöðu hans núna eða í fyrra, á sama tíma er Daníel (Hafsteinsson) að spila frábærlega," sagði Þorlákur.
„Víkingar eru með betra lið en í fyrra, sérstaklega sóknarlega, þá eru Gylfi og Daníel að mynda bestu miðju deildarinnar."
Það var tilkynnt fyrr í dag að Gylfi væri búinn að skrifa undir nýjan samning við Víking sem gildir út næsta tímabil.
Viðtölin eru hluti af pistli sem birtist 15. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Tvær gjörólíkar leiðir á toppinn

Gylfi framlengdi við Víkinga fyrr í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð