Fotbolti.net
02.12.20 - 21:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Var Marquinhos rangstæður? - Fred fór í boltann en fékk seinna gula

Var Marquinhos rangstæður? - Fred fór í boltann en fékk seinna gula
Canon

Mynd: Getty Images

Vafaatriðin féllu í tvígang gegn Manchester United á tveggja mínútna kafa um miðbik seinni hálfleiksins gegn PSG í Meistaradeildinni.

Staðan er 1-2 fyrir PSG þegar þetta er skrifað og þrjár mínútur eftir af venjulegum leiktíma.

Fyrst kom Marquinhos PSG yfir á 69. mínútu þegar hann kom boltanum í netið. Marquinhos var mögulega rangstæður en í útsendingunni var ekki teiknuð lína eins og í úrvalsdeildinni.

Mínútu síðar fékk Fred að líta sitt annað gula spjald fyrir meint brot á Ander Herrera. Fred fór í boltann og geta lesendur dæmt hver fyrir sig. Fred var líklega á síðasta séns eftir að hafa farið með höfuðið í Leandro Paredes í fyrri hálfleik. Þá fékk hann sitt fyrra gula spjald.

Mark Marquinhos má sjá hér og rauða spjaldið má sjá hér.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.