Tékkar dæma leik Vestra og Qarabag í Dalnum

Qarabag vann fyrri leikinn 3-0.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Qarabag vann fyrri leikinn 3-0.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður dómarateymi frá Tékklandi sem mun dæma seinni leik Vestra og Qarabag frá Aserbaísjan á fimmtudagskvöld en liðin mætast þá í seinni viðureign sinni í forkeppni Evrópudeildarinnar.
Qarabag vann fyrri viðureignina 3-0 og er með öll spil á hendi. Evrópuþátttöku Vestra mun hinsvegar ekki ljúka þó liðið falli úr leik því þá mun það mæta Glentoran frá Norður Írlandi eða RFS frá Lettlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Leikurinn á fimmtudag verður spilaður á heimavelli Þróttar í Laugardal og verður hinn 33 ára gamli Marek Radina með flautuna. Notast verður við VAR í leiknum og koma VAR dómararnir einnig frá Tékklandi.

Lestu um leikinn: ETO Györ 1 - 1 Víkingur R.
Núna klukkan 17 verður seinni leikur ETO Györ og Íslandmeistara Víkings í forkeppni Meistaradeildarinnar. Dómararnir í þeim leik koma frá Króatíu en aðaldómari er Mateo Erceg. Víkingur leiðir einvígið 1-0.
Stjarnan fer til Færeyja og mætir Víkingi frá Götu í seinni viðureign liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar á fimmtudag. Stjarnan vann fyrri leikinn 3-1 en seinni leikurinn verður í Klaksvík í Færeyjum. Dómarateymið þar kemur frá Eistlandi og Karl Koppel verður með flautuna.