Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. janúar 2020 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Íslendingavaktin 
Sverrir Ingi í liði vikunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sverrir Ingi Ingason hefur heldur betur látið finna fyrir sér í gríska boltanum og hefur verið valinn í lið vikunnar í annað sinn á tæpum mánuði.

Sverrir Ingi skoraði tvennu í 5-1 sigri PAOK gegn Atromitos í síðustu umferð og er PAOK á toppi deildarinnar með tveggja stiga forystu á Olympiakos.

Þetta var tíundi deildarleikur Sverris í röð í byrjunarliðinu og hans fjórða mark. Í þessum tíu leikjum hefur PAOK sjö sinnum haldið hreinu og ljóst að Sverrir er orðinn lykilmaður hjá félaginu.

Annað marka Sverris í sigrinum var afar laglegur skalli sem var valinn meðal fimm bestu marka umferðarinnar. Skalla Sverris má sjá hér fyrir neðan, eftir um 1:50 mínútu á myndbandinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner