Dwight McNeil er niðurbrotinn og brast í grát eftir að ekkert varð af skiptum hans frá Everton til Crystal Palace. Þetta segir kærasta hans, Megan Sharpley, í dramatískum pistli á Instagram.
Hún gagnrýnir Crystal Palace og segir félagið hafa spilað með andlega heilsu McNeil á gluggadeginum.
Hún gagnrýnir Crystal Palace og segir félagið hafa spilað með andlega heilsu McNeil á gluggadeginum.
Palace hafði samið um að fá McNeil lánaðan og kaupa hann svo á 20 milljónir punda í sumar. Hann hafði gengist undir læknisskoðun og allt virtist klárt en um kvöldið kom í ljós að öllum pappírum hefði ekki verið skilað inn.
Megan segir að skyndilega hafi McNeil hætt að fá nokkrar upplýsingar frá Lundúnafélaginu.
Hún segir að hann hafi átt að fá fjögurra og hálfs árs samning og að parið hefði búið sig undir að flytja í höfuðborgina. Þær áætlanir hafi skyndilega verið hrifsaðar frá þeim án útskýringa.
„Við lifum í heimi þar sem fólk gerir sér grein fyrir mikilvægi andlegrar heilsu. Er eðililegt að koma svona fram við fótboltamenn því þeir fá mikið borgað? Er í lagi að spila með andlega heilsu þeirra því það á bara að vera hluti af starfinu?" skrifar Megan.
„Við erum niðurbrotin eftir að hafa fengið að kynnast því hvað fótboltaheimurinn sem við elskum getur verið grimmur. Að fá svona loforð og vera svo dregin í tilfinningaríkum rússíbana og spilað með mann fram á síðustu mínútu."
McNeil hefur verið hjá Everton síðan hann kom frá Burnley í júlí 2022 en hefur ekki átt fast sæti hjá David Moyes. Hann hefur byrjað í sjö af fjórtán leikjum sem hann hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Athugasemdir



