Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að félagið muni fljótlega hefja samningaviðræður við framherjann Alexandre Lacazette.
Hinn 29 ára gamli Lacazette á rúmt ár eftir af samningi sínum en orðrómur hefur verið um að hann gæti farið frá Arsenal í sumar.
Hinn 29 ára gamli Lacazette á rúmt ár eftir af samningi sínum en orðrómur hefur verið um að hann gæti farið frá Arsenal í sumar.
„Hann er með samning við okkur," sagði Arteta.
„Hann stóð sig mjög vel um síðustu helgi. Hann gerði nákvæmlega það sem við viljum fá frá honum. Viðræður um samning hans munu eiga sér stað fljótlega og við sjáum hvað gerist."
„Ég vona að leikmenn sem eru samningsbundnir hér haldi áfram með okkur. Hvert tilfelli er mismunandi."
Athugasemdir