Ármann Ingi Finnbogason er örvfættur kantmaður sem spilar oftast úti hægra megin. Hann er uppalinn hjá ÍA en var í vetur keyptur til Víkings.
Hann var lokakafla tímabilsins 2024 á láni hjá Grindavík og svo allt síðasta tímabil og sýndi góða takta. Hann hefur einnig leikið með Kára, venslaliði ÍA, á sínum ferli. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Hann var lokakafla tímabilsins 2024 á láni hjá Grindavík og svo allt síðasta tímabil og sýndi góða takta. Hann hefur einnig leikið með Kára, venslaliði ÍA, á sínum ferli. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Ármann Ingi Finnbogason
Gælunafn: Manni, Armani
Aldur: 21 Ára
Hjúskaparstaða: föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: minn fyrsti M.fl.leikur í efstu deild var sumarið 2022 með ÍA á Víkingsvelli. Var nálægt því að vera með stoðsendingu í þessum leik.
Uppáhalds drykkur: Ískaldur Nocco Limon
Uppáhalds matsölustaður: það verður að vera Papas pizza og Galito
Uppáhalds tölvuleikur: EA FC 26
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Dexter og verð líka að nefna Rikki fer til Ameríku
Uppáhalds tónlistarmaður: Gunna og Don Toliver
Uppáhalds hlaðvarp: Dr. Football
Uppáhalds samfélagsmiðill: Tiktok
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: verð að segja Nablinn og minn allra besti Kristófer Áki Hlinason
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: er á leiðinni :)
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: ekkert lið sem mér dettur í hug. segi bara aldrei segja aldrei
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Gylfi Þór Sigurðsson
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: það eru svo margir, en verð bara að segja Siggi Jóns, Halli Hróðmars og allt þjálfarateymið hjá Víking
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Jóhannes Breki Harðarson var svakalegur á gervigrasinu við Grundaskóla
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Messi, Gylfi Sig og Arnór Sig
Sætasti sigurinn: þegar ég skoraði fernu í 5-4 sigri í 2.fl leik á móti KA
Mestu vonbrigðin: tapa undanúrslitum á móti Val í 2. flokki
Uppáhalds lið í enska: Newcastle united
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: mjög erfitt val en þetta væri á milli Breka Þórs Hermannssonar og Inga Þórs Sigurðssonar
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: ætli það sé ekki bara brósi, Jón Þór Finnbogason
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Breki Þór Hermannsson sá myndarlegasti allra myndi ég segja
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Sigríður Emma Fanndal Jónsdóttir
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: hef ekkert út á reglurnar að setja.
Uppáhalds staður á Íslandi: Grindavík
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: það var vígalegt þegar Svenni Hlöðvers, formaður Kára, kom inn á í leik á Grenivík sem framherji og spilaði með okkur síðustu mínúturnar.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: já, er með hjátrú að teipa alltaf vinstri úlnlið
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: já, fylgist mikið með Bónus deildinni í körfubolta
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: ég er í Nike mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: myndi örugglega segja íslensku
Vandræðalegasta augnablik: þegar ég ætlaði að laumast til að halda í vestið hjá einum á æfingu og flækti puttann í og puttabrotnaði.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: væri gaman að rifja upp gamla Grindarvíkurtakta í gameday-lasagnegerð með Inga og Breka
Bestur/best í klefanum og af hverju: Ætli það sé ekki Davíð Örn.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Væri til í að sjá Óskar Bogga spreyta sig í Love Island
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Skrifa og sparka með vinstri
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: kom mér mikið á óvart hvað Davíð Örn og Sveinn Margeir eru helvíti fyndnir.
Hverju laugstu síðast: Sagði mömmu að ég ætlaði að fara viðra hundinn, það klikkaði aðeins.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: það verður að vera upphitun
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Ronaldo hvort hann haldi í alvöru að hann sé the goat en ekki Messi
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Allir á völlinn!! Og svo..... ÁFRAAAAAAMM VÍKINGUR!!!


