03.05.17 - 20:45
Mist Rúnarsdóttir
Margrét Lára: Erum komnar inn í mótið
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára Viðarsdóttir fyrirliði Vals var að vonum ánægð eftir stórsigur á ÍBV. Sjálf átti Margrét Lára stórgóðan leik. Skoraði og átti stoðsendingu. Mörkin létu þó bíða eftir sér og fyrsta markið kom ekki fyrr en á 70. mínútu.
<i>„Mér fannst fyrri hálfleikurinn hjá okkur mjög góður á móti þessum sterka vindi. Við vorum að spila vel og þær voru að verja á línu og við skutum í stangir og annað. En þetta er alltaf hættulegt. Eyjaliðið er náttúrulega gríðarlega sterkt lið með frábæra leikmenn innanborðs sem geta refsað illilega og við vorum mjög meðvitaðar um það. Mér fannst vörnin okkar í heildina mjög góð í dag og svo þegar fyrsta markið og annað markið kom þá fór þetta að rúlla betur fyrir okkur,\"</i> sagði Margrét.

Valsliðið var meira með boltann í fyrri hálfleik en átti í vandræðum með að koma boltanum í mark mótherjanna. Við spurðum Margréti Láru hvað Úlfur Blandon þjálfari hafi sagt við liðið í hálfleik.
„Það var í rauninni bara að halda þolinmæðinni og halda áfram. Við vorum skapandi og við vorum að reyna að halda boltanum niðri og mér fannst það ganga ágætlega á móti sterkum vindi. Svo var það bara að halda þolinmæðinni og trúnni á verkefninu og mér fannst það ganga vel upp. 4-0 er bara mjög sannfærandi en Eyjaliðið er eins og ég segi hörkugóðar og það má ekki gleyma sér í eina sekúndu á móti þeim.\"
„Við fórum norður í síðustu umferð og töpuðum þar. Við vorum náttúrulega drullusvekktar með það. Okkur langaði að koma og svara fyrir það og koma okkur inn í þetta mót. Nú erum við komnar inn í það en erum í drulluerfiðu prógrammi. Við eigum Breiðablik næst og svo Stjörnuna þannig að það þarf bara að taka einn leik í einu og sjá hvað það gefur okkur.\"
Valur mætir Þór/KA, ÍBV, Breiðablik og Stjörnunni í fyrstu fjórum umferðum mótsins en þetta eru þau lið sem hefur verið spáð efstu sætum deildarinnar auk Vals.
„Mótið er bara sterkt og það verða allir leikir erfiðir. Þetta er bara ótrúlega gaman og skemmtilegt mót. Við töpum síðasta leik fyrir norðan og Breiðablik tapar fyrir norðan. Þetta verður bara barátta fram í síðustu umferð held ég og næsti leikur verður enn ein baráttan. Maður þarf bara að gíra sig upp og koma sér niður á jörðina fljótt eftir þennan því að Breiðablik er gríðarlega sterkt lið og við þurfum að eiga okkar besta leik til að vinna,\" sagði Margrét Lára að lokum og við vonum að hún hafi rétt fyrir sér að því leyti að mótið ráðist ekki fyrr en á síðustu metrunum og sumarið verði spennandi.