Fotbolti.net
03.05.17 - 22:16
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Róbert: Hann hefði alveg getað dæmt víti

Auglýsing
Róbert, þjálfari Grindavíkur

Róbert, þjálfari Grindavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

Hertz
Róbert Jóhann Haraldsson, þjálfari Grindavíkur var virkilega ánægður með sigur liðsins gegn Haukum í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

<i>„Ég er guðslifandi feginn að hafa náð í þessi þrjú stig. Eftir fyrstu umferðina var þetta eiginlega bara „must\". Ég var svolítið hræddur fyrir þennan leik. Það er alltaf erfitt að spila við liðið sem spáð er neðsta sæti. Ég er mjög ánægður núna,\"</i> sagði Róbert.

Grindvíkingar voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en leikurinn jafnaðist í þeim síðari. Róbert var ekki nægilega ánægður með það.

<i>„Ég var eiginlega svolítið fúll. Fyrra markið kom á fyrstu mínútu og við fáum helling af færum og að vera ekki búinn að skora eitt, tvö, þrjú í viðbót var fúlt í hálfleik. Við ákváðum það í seinni hálfleik að taka boltann niður og spila. Mér fannst spilið vera betra í seinni hálfleik.\"</i>

Haukar vildi fá víti í seinni hálfleik í stöðunni 1-0 fyrir Grindavík en fengu ekki.

<i>„Ég sá það ekki. Hann hefði alveg getað dæmt víti. Sá að það var klafs þarna en ég sá það ekki nógu vel.\"</i>

Bentína, fyrirliði Grindavíkur fór útaf vegna meiðsla undir lok leiksins. Róbert telur það hins vegar ekki vera alvarlegt og býst við að hún verði klár í næsta leik.

<i>„Hún fékk högg á lífbeinið. Ég held að hún verði spræk fyrir KR næsta miðvikudag.\"</i>

Thaisa, brasilísk landsliðskona Grindavíkur var frábær í dag og var Róbert ánægður með hana.

<i>„Thaisa á miðjunni var stórkostleg í dag. Hún er algjör klassi og bara gaman að horfa á þetta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.