Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 03. maí 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Varane ekki með gegn Chelsea - Ramos leikfær en ekki í leikæfingu
Varane verður ekki með Real Madrid.
Varane verður ekki með Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur staðfest það að Raphael Varane sé að glíma við nárameiðsli og missir af leiknum gegn Chelsea á Stamford Bridge á miðvikudaginn.

1-1 varð niðurstaðan þegar þessi lið áttust við í Madríd í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Varane meiddist í fyrri hálfleik í leik Real Madrid gegn Osasuna um helgina.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Madrídarliðið sem er ekki með mikla breidd varnarlega fyrir seinni leikinn.

Sergio Ramos er leikfær en hann hefur ekki spilað neitt síðan hann meiddist í landsleikjaglugganum.
Athugasemdir
banner
banner
banner