Porto varð portúgalskur deildarmeistari í 31. sinn í sögu félagsins í gær.
Porto-menn unnu Alverca með einu marki gegn einu á heimavelli og urðu meistarar þegar tvær umferðir eru eftir.
Andre Villas-Boas, sem tók við sem forseti félagsins árið 2024, sá um endurbyggingu liðsins og fékk ítalska þjálfarann Francesco Farioli til starfa á síðasta ári og sótti síðan réttu leikmennina í stað þess að eyða villt í leikmenn sem félagið þurfti ekki.
Vörn liðsins með brasilíska reynsluboltann Thiago Silva innanborðs og Diogo Costa í markinu hefur aðeins fengið fimmtán mörk á sig og Costa haldið hreinu átján sinnum.
Mikið flæði hefur verið í sóknarleik Farioli í 4-3-3 kerfinu þar sem uppspil er gríðarlega mikilvægt og bakverðirnir spila sem hálfgerðir miðjumenn í sóknarleiknum, en Porto fór úr löngum boltum yfir í stuttar sendingar og var leikstíl og leikkerfi liðsins algerlega umturnað.
Stærsta verkefni Villas-Boas í sumar verður að halda Farioli áfram hjá félaginu en hann hefur verið orðaður við Chelsea síðustu vikur, sem er í leit að nýjum stjóra eftir að hafa rekið Liam Rosenior.
02.05.2026 ???? #ConseguimosJuntos pic.twitter.com/i7Og3o3gAG
— FC Porto (@FCPorto) May 2, 2026




