Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 03. júní 2021 23:10
Hafþór Bjarki Guðmundsson
Gústi Gylfa svekktur: Þetta er að gerast í annað skipti hjá okkur
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mér líður frekar illa, sérstaklega þar sem þetta er að gerast í annað skipti hjá okkur. Við vorum að spila á Selfossi í síðustu umferð og það var svipað, komumst í 3-0 og náum að tapa því niður í 3-3 og gerum það sama hér. Komumst í þægilega stöðu, komnir í 2-0 og hleypum Þrótturunum auðveldlega inní leikinn. Ég er gríðarlega svekktur með að hafa ekki tekið sex stig úr seinustu tveim leikjum. Alveg gríðarlega svekktur," er það sem svekktur Ágúst Gylfason sagði um leik Gróttu gegn Þrótti á Vivaldivellinum í kvöld.

Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli eftir að Grótta voru 2-0 yfir í hálfleik og er þetta annar leikur þeirra í röð sem þeir missa forystu eftir leikhlé.

Lestu um leikinn: Grótta 2 -  2 Þróttur R.

Dæmt var víti á Gróttumenn í leiknum þar sem Halldór Kristján Baldursson fær að lýta rauða spjaldið. Gústa fannst þetta harður dómur.

Ég sé þetta ekki almennilega en auðvitað er þetta harður dómur. Það er ekkert að gerast hjá andstæðingnum og við erum með leikinn nokkurn veginn undir control og hleypum þeim þarna inní með þessu. Dómarinn dæmir viti og rautt spjald, ég veit ekki hvort þetta sé rétt eða rangt en við þurfum að skoða það betur.

Jafnteflið í kvöld eru fyrstu töpuðu stig Gróttu á heimavelli í sumar og var það plan Gústa að gera Vivaldivöllinn að þeirra vígi í sumar og ætlar hann að halda í vonina um það þrátt fyrir töpuð stig í kvöld.

„Klárlega, það leit þannig út framan af leik en því miður náðum við ekki að halda sigurgöngunni áfram heima en við eigum næsta leik á móti Kórdrengjum úti í næstu viku og við þurfum að svara fyrir þennan leik þar. Það er ekkert öðruvísi.

Viðtalið við Gústa má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner