Ungir leikmenn fá heldur betur tækifæri til að láta ljós sitt skína á stærsta sviðinu á HM í sumar. Mótið fer af stað í næstu viku, 11. júní. Tor-Kristian Karlsen sérfræðingur ESPN setti saman lista yfir 21 leikmann sem eru 21 árs eða yngri. Byrjum í 21. sætinu og vinnum okkur svo upp...
21. Antonio Nusa (21 árs), Noregur (RB Leipzig) - Var geggjaður fyrir Noreg í undankeppninni og skoraði bæði heima og úti gegn Ítalíu.
20. Ayyoub Bouaddi (18 ára), Marokkó (Lille) - Varnartengiliður sem er gríðarlega þroskaður miðað við aldur. Lék fyrir yngri landslið Frakklands.
19. Ibrahim Mbaye (18 ára), Senegal (PSG) - Gríðarlega hraður og beinskeyttur framherji. Er ekki fastur byrjunarliðsmaður fyrir land eða lið en getur verið öflugt vopn af bekknum.
18. Bazoumana Toure (20 ára), Fílabeinsströndin (Hoffenheim) - Fílabeinsströndin er með gríðarlega spennandi, leiftrandi og skemmtilega kantmenn.
17. Ibrahim Maza (20 ára), Alsír (Bayer Leverkusen) - Sóknarmiðjumaður með mikinn sköpunarmátt. er sagður undir smásjám Manchester City og Atletico Madrid.
16. Luka Vuskovic (19 ára), Króatía (Tottenham (á láni hjá Hamborg)) - Ungur miðvörður á leið á sitt fyrsta stórmót. Verður væntanlega í miðjunni í þriggja miðvarða kerfi Króata.
15. Lucas Bergvall (20 ára), Svíþjóð (Tottenham) - Reynslunni ríkari eftir erfitt tímabil með Spurs. Góður miðjumaður sem tengir saman vörn og sókn.
14. Rayan (19 ára), Brasilía (Bournemouth) - Brasilía er með gott úrval sóknarlega og Rayan verður valkostur til að koma með ógn inn af bekknum.
13. Endrick (19 ára), Brasilía (Real Madrid (á láni hjá Lyon)) - Eftir bras hjá Real Madrid hefur Endrick sýnt magnaða hæfileika sína hjá Lyon þar sem hann hjálpaði liðinu að komast í Meistaradeildina.
12. Kobbie Mainoo (21 árs), England (Manchester United) - Hluti af öflugu miðjumannaúrvali enska landsliðsins. Náði aftur fyrri hæðum hjá United eftir að Michael Carrick tók við.
11. Nico O'Reilly (21 árs), England (Manchester City) - Valinn besti ungi leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Fjölhæfur og klókur leikmaður sem vinnur svo vel með boltann á þröngum svæðum.
10. Yan Diomande (19 ára), Fílabeinsströndin (RB Leipzig) - Kantmaður með 12 mörk og 10 stoðsendingar á tímabilinu í þýsku Bundesligunni. Ekki furða að Liverpool vilji galopna veskið fyrir hann.
9. Lennart Karl (18 ára), Þýskaland (Bayern München) - Kemur með öðruvísi valkosti af bekknum. Með mikinn sprengikraft og hefur sýnt í þýsku deildinni og Meistaradeildinni hvers megnugur hann er.
8. Warren Zaire-Emery (20 ára), Frakkland (PSG) - Tvítugur á HM með 182 mótsleiki fyrir PSG undir beltinu og risastóra titla. Agaður og traustur miðjumaður.
7. Kenan Yildiz (21 árs), Tyrkland (Juventus) - Kemur með mikla sóknarógn og er hörkuöflugur skotmaður af nýrri og spennandi kynslóð tyrkneska liðsins.
6. Desire Doue (21 árs), Frakkland (PSG) - Skoraði tvö gegn Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra og fylgdi því eftir með frábæru tímabili. Getur spilað allar sóknarstöðurnar.
5. Nico Paz (21 árs), Argentína (Como) - Örvfættur með mikinn sköpunarmátt. Vill vinna fyrir aftan fremsta mann og opna upp svæði. Líður vel með boltann og er hrikalega góður skotmaður. Geggjaður hjjá Como og gæti snúið aftur í Real Madrid.
4. Pau Cubarsí (19 ára), Spánn (Barcelona) - Frábær varnarmaður sem hefur þegar 100 leiki undir beltinu. Geggjaður sendingamaður sem smellpassar í spænska liðið.
3. Joao Neves (21 árs), Portúgal (PSG) - Kvikur, vinnusamur miðjumaður með mikinn leikskilning. Getur bæði spilað varnahlutverk á miðjunni og einnig sem 'átta'.
2. Arda Guler (21 árs), Tyrkland (Real Madrid) - Með feikilega tækni og knattmeðferð, góður skotmaður. Verður væntanlega í 'tíu'-hlutverkinu hjá Tyrklandi. Leikmaður sem getur breytt leiknum á augabragði.



